No translated content text
Senn líður að verklokum endurgerðar Hverfisgötu frá Smiðjustíg niður fyrir Ingólfsstræti. Um helgina verður lokið við að steinleggja gatnamót Hverfisgötu og Ingólfsstrætis. Við þann áfanga kemur vel í ljós hve miklu framkvæmdirnar munu breyta fyrir ásýnd götunnar.
Í næstu viku verður unnið að lokafrágangi gangstéttar og hjólastígs við norðanverða Hverfisgötu við Safnahús og Þjóðleikhúsið. Steinlagt torg fyrir framan Þjóðleikhúsið verður tilbúið í lok fyrstu viku nóvember og verður opnað fyrir umferð í beinu framhaldi.
Vinnu við frágang gangstéttar og hjólastígs að sunnanverðu á að ljúka um miðjan nóvember.
Nánari upplýsingar:
- Upplýsingasíða í Framkvæmdasjá: Hverfisgata milli Ingólfsstrætis og Smiðjustígs