Elínrós Benediktsdóttir hefur verið ráðinn skólastjóri Ölduselsskóla.
Elínrós hefur starfað við Ölduselsskóla um langa hríð. Hún lauk B.Ed. prófi árið 2001 og M.A. námi í mannauðsstjórnun árið 2016. Hún hefur metnaðarfulla framtíðarsýn og hugmyndir um farsælt skólastarf sem byggir á samvinnu allra aðila skólasamfélagsins.
Ölduselsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Nemendafjöldi er u.þ.b 510 nemendur og starfsmenn skólans er um 80 talsins.
Við óskum Elínrós farsældar í starfi sem skólastjóri Ölduselsskóla.