![""](/sites/default/files/styles/landscape_small/public/myndir_frettir/frettamyndir_2014_febjuli/screenshot_2019-05-10_at_13.11.43_0.png?h=0a44a680&itok=1-6vIRsC)
Tilkynning frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er varðar starfsemi leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs.
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að skipulagningu skóla- og frístundastarfs miðað við ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16. mars verði starfsdagur í leikskólum, grunnskólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum og skólahljómsveitum til þess að stjórnendur og starfsmenn geti skipulagt fagstarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.
Foreldrar/forráðamenn leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðum sveitarfélaganna og heimasíðum grunn- og leikskóla. Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frístundaheimili, íþróttastarf, íþróttamannvirki, skólahljómsveitir, og aðrar tómstundir barna.