No translated content text
Umhverfis- og skipulagsráð hefur afgreitt í auglýsingu deiliskipulagsbreytingu í Laugardal sem felur í sér rými fyrir Þjóðarhöll. Í breytingunni sem lögð er til felst að umrædd lóð (F) og byggingarreitur Laugardalshallar stækka og að innan byggingarreitsins er þá gert ráð fyrir Þjóðarhöll fyrir innanhúsíþróttir og viðburði.
Hámarks byggingarmagn nýrrar Þjóðarhallar er 19.000 m2. Jafnframt minnkar önnur lóð (G) og framlengdur Vegmúli inn í Laugardal og lóð fyrir bílakjallara sunnan byggingar ÍSÍ og ÍBR eru felld út úr skipulagi, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdrætti Landslags ehf. Samþykkt ráðsins var vísað til borgarráðs.
Þjóðarhöllin verður áberandi í borgarlandinu
Þjóðarhöllin verður áberandi í umhverfi Laugardalsins. Áhersla verður á vandaða byggingarlist. Hönnun byggingarinnar skal innifela viðurkennt umhverfisvottunarferli og miðast við að byggingin hljóti slíka vottun eins og t.d. BREEAM fyrir byggingar.
Gert er ráð fyrir að aðalgólf Laugardalshallar, frjálsíþróttahallar og Þjóðarhallar verði allar í sömu hæð. Aðstæður í landi gera það að verkum að Þjóðarhöllin mun grafast að hluta til inn í hæðarmun frá Laugardalshöll upp að samgöngustíg norðan Suðurlandsbrautar.
Við staðsetningu aðalinnganga er mikilvægt að horfa til væntanlegrar borgarlínustöðvar á Suðurlandsbraut, vestan gatnamót við Vegmúla.
Stígatengingar
Gert er ráð fyrir að núverandi aðgreindir hjóla- og göngustígar norðan Suðurlandsbrautar fari óbreyttir í gegnum suðurjaðar breytingarsvæðisins.
Sérstaklega skal huga að leiðum frá fyrirhugaðri borgarlínustöð á Suðurlandsbraut bæði að nýrri Þjóðarhöll og öðru aðdráttarafli í Laugardal. Aðkomuleiðir að Þjóðarhöllinni verða greiðar fyrir gangandi frá borgarlínustöð og aðgengilegar öllum.
Bílastæði
Byggingarreitur Þjóðarhallar fer yfir 140 bílastæði aftan við Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöll. Ekki er gert ráð fyrir að bæta þau stæði upp með nýjum stæðum annars staðar á lóðinni. Fellur það að hugmyndum um að draga úr bílaumferð í Laugardal og leggja auknar áherslur á vistvæna samgöngumáta. Borgarlínustöðin gegnir þar lykilhlutverki.