Breytingar á velferðarþjónustu frá 4. maí

Covid-19 Velferð

""

Frá og með mánudeginum 4. maí verða gerðar nokkrar breytingar á þjónustu velferðarsviðs, en skert þjónusta og lokanir hafa verið í gildi á allmörgum starfstöðvum síðan að almannavarnir lýstu yfir neyðarstigi vegna Covid-19 þann 6. mars.

Mikil áhersla var lögð á að halda uppi þjónustu við viðkvæmustu hópana; t.d. í heimaþjónustu og heimahjúkrun. Það hefur tekist vonum framar og án þess að smit hafi komið upp.

Mestu breytingarnar að þessu sinni eru í félagsstarfi fullorðinna. Stefnt verður að því að taka markviss skref til að auka þjónustu velferðarsviðs með frekari opnunum á næstu vikum, en þau munu að sjálfsögðu taka mið af framvindu mála og smitum í samfélaginu.

Í allri þjónustu velferðarsviðs verður áfram lögð áhersla á:

  • Mikilvægi handþvotts og smitvarna.
  • Tveggja metra fjarlægð á milli fólks eins og unnt er í starfi inni á heimilum fólks.
  • Að starfsfólk takmarki náið samneyti við ákveðinn fjölda fólks.

Ekki má heimsækja eða umgangast fatlað fólk né eldri borgara ef einstaklingur:

  • Er í sóttkví.
  • Er í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku).
  • Hefur verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
  • Er með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverki, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
     

Félagsmiðstöðvar

Átta félagsmiðstöðvar munu opna fyrir almenningi en fyrst um sinn verða fjöldatakmarkanir í félagsstarfi og miðað er við 20 manns í hverju rými. Hefðbundin dagskrá er ekki í gildi, heldur tekið mið að aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Til að tryggja tveggja metra reglu á milli fólks og að fjöldi verði ekki meiri en 20 manns þarf fólk eftir atvikum að skrá sig fyrirfram á þá viðburði sem verða í boði. Áfram verður boðið upp á rafrænan samsöng og upplestur.

Eftirfarandi félagsmiðstöðvar opna aftur:

  1. Aflagrandi
  2. Árskógar
  3. Borgir
  4. Bólstaðarhlíð
  5. Gerðuberg
  6. Hæðargarður
  7. Hvassaleiti 31
  8. Hraunbær 105

Eftirfarandi félagsmiðstöðvar verða áfram lokaðar:

  1. Sléttuvegur 11
  2. Dalbraut 18-20
     

Þjónustuíbúðir

Félagsstarf í þjónustuíbúðum opnar að nýju fyrir íbúa en verður áfram lokað fyrir utanaðkomandi. 

Þetta á við um:

  1. Seljahlíð
  2. Furugerði 1
  3. Norðurbrún 1
  4. Dalbraut 21-27
  5. Lönguhlíð 3
  6. Vitatorg

 

Máltíðir og heimsendur matur

Matarþjónusta í félagsmiðstöðvum verður ekki opnuð að svo stöddu. Vonast er til að það verði gert samhliða frekari tilslökunum.

Áfram verður hægt að fá heimsendan mat. Sótt er um í síma 411 9450 eða í netfangið maturinnheim@reykjavik.is. Umsóknir þurfa að berast kl. 14:00 daginn áður.
 

Hárgreiðslu- og fótsnyrtistofur

Hárgreiðslu- og fótsnyrtistofur verða opnaðar aftur. Hár- og fótsnyrting er aðeins leyfð fyrir einn hóp í einu, annars vegar fyrir íbúa í þjónustuíbúðakjarna og hins vegar fyrir gesti. Rekstraraðilar sjá um að hópar blandist ekki saman.
 

Akstursþjónusta

Ítrustu varúðar og sóttvarna verður áfram gætt í akstursþjónustu eldri borgara og fatlaðs fólks.
 

Skammtímadvalir og vinnu- og virknimiðuð stoðþjónusta fyrir fatlað fólk

Þjónusta hefur verið skert í skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni og í vinnu- og virknimiðaðri stoðþjónustu fyrir fatlaða einstaklinga. Tilslakanir frá og með 4. maí miðast við aðstæður og stærð rýmis á hverjum stað og sérstök áhersla er lögð á einstaklingsbundna nálgun þar sem reynt er að mæta þörfum hvers og eins. Starfsemin verður áfram hópaskipt og sóttvarnir tryggðar.
 

    Þjónustumiðstöðvar

    Opnunartími þjónustumiðstöðva velferðarsviðs verður áfram kl. 10:00-15:00. Til stendur að endurskoða opnunartímann á næstu vikum. Tekið er við símtölum kl. 8:30-16:00. Minnt er á að hægt er að sækja rafrænt um ýmsa þjónustu s.s. fjárhagsaðstoð og akstursþjónustu fyrir eldri borgara og fatlað fólk. Einnig er fjarþjónusta veitt þegar unnt er að koma því við, t.d. með skjáviðtölum.
     

    Neyðarskýli fyrir heimilislaust fólk

    Frá og með 4. maí verða neyðar- og gistiskýli fyrir heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir í Konukoti og Grandagarði opin frá 17:00 til 10:00 daginn eftir. Gistiskýlið við Lindargötu mun þó hafa rýmri opnunartíma yfir daginn fyrir einstaklinga í áhættuhóp.