Börn að jafnaði 19 mánaða þegar þau innritast í leikskóla í Reykjavík

Skóli og frístund

Leikskólabörn með kennara sínum.

Á liðnu hausti var meðalaldur barna sem hófu vistun í leikskólum í Reykjavík 19 mánaða. 38% barnanna voru yngri en 18 mánaða þegar þau hófu vistun og um 78% barnanna voru 24 mánaða eða yngri.

 

Hlutfall barna í borgarreknum leikskólum sem hefja vistun fyrir 24 mánaða aldur hefur aukist úr 46% á árinu 2018 í 70% á þessu hausti. 

Öllum börnum á biðlista um leikskólapláss sem voru orðin 18 mánaða 1. september var boðið leikskólapláss haustið 2021 og haustið 2020. Flestir foreldrar þáðu boð um leikskólapláss en ekki allir, t.d. vegna staðsetningar þess pláss sem þeim bauðst. Staðsetning fjögurra nýrra leikskóla, svokallaðra Ævintýraborga, var valin í ljósi greiningar á eftirspurn eftir leikskólaplássum í hverfum borgarinnar.

Ýmislegt hefur áhrif á útreikningi á meðalaldri barna sem innritast í leikskóla, m.a. flutningar eldri barna á milli leikskóla og úr öðrum sveitarfélögum eða frá útlöndum. Sjá minnisblað sem lagt var fyrir skóla- og frístundaráð 14. desember þar sem tekið er tillit til þessara þátta við útreikning á meðalaldri barna við inntöku í leikskóla.