Borgarstjórinn í Reykjavík hefur ásamt yfir 60 öðrum borgarstjórum víðsvegar í heiminum, skrifað undir yfirlýsingu um að ná ofbeldi niður um helming frá því sem nú er fyrir árið 2030.
Sameiginleg yfirlýsing þeirra var afhent aðalritara Sameinuðu þjóðanna á Alþjóða friðardaginn þann 21. september sl.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri mun vinna að þessu metnaðarfulla markmiði með ofbeldisvarnarnefnd Reykjavíkurborgar í samvinnu við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu og þeim fjölmörgu grasrótarsamtökum sem hafa í gegnum árin unnið ötullega að því markmiði að minnka ofbeldi í samfélaginu. Þegar vinna ofantaldir aðilar saman að verkefninu Saman gegn ofbeldi sem staðið hefur í sex ár þar sem markmiðið er að draga úr heimilisofbeldi.
Með því að skrifa undir sameiginlega yfirlýsingu setja borgarstjórar það í forgang að sporna við ofbeldi í heiminum. Á hverju ári týnir fjöldi fólks lífi í átökum sem tengjast öfgahyggju, glæpum og heimilisofbeldi.
Covid-19 faraldurinn hefur haft mikil félagsleg, efnahagsleg og pólitísk áhrif í heiminum. Hann hefur einnig haft í för með sér aukið ofbeldi í öllum stéttum samfélagsins. Þar er helst að nefna heimilisofbeldi og stafrænt ofbeldi þar sem þolendur eru konur og börn og ýmsir viðkvæmir hópar í samfélaginu.
Borgarstjórarnir sem skrifa undir yfirlýsinguna eru hluti af samtökum borgarstjóra, Global Parliament of Mayors, sem vilja draga úr ofbeldi með forvörnum og félagslegum og efnahagslegum aðgerðum.