Á fundi borgarráðs í dag var samþykkt úthutun fyrir 530 íbúðir og hefur þá í heild verið úthlutað lóðum fyrir 1.435 íbúðir í ár. Lóðirnar sem um ræðir eru við Stakkahlíð og Nauthólsveg.
Við Stakkahlíð fá Byggingarfélag námsmanna byggingarrétt á 100 íbúðum fyrir stúdenta og Samtök eldri borgara byggingarrétt fyrir 60 íbúðir fyrir aldraða. Á Nauthólsvegi mun Háskólinn í Reykjavík byggja 370 íbúðir fyrir stúdenta.
Byggingarréttur fyrir 1.435 íbúðir á þessu ári
Í listanum hér fyrir neðan er yfirlit yfir úthlutun byggingarréttar á þessu ári:
- Stakkahlíð: Byggingarfélag námsmanna - 100 íbúðir fyrir stúdenta
- Stakkahlíð: Samtök aldraðra - 60 íbúðir fyrir aldraða
- Nauthólsvegur: Háskólinn í Reykjavík - 370 íbúðir fyrir stúdenta
- Reynisvatnsás: Einstaklingar - 22 lóðir fyrir einbýlishús
- Hallgerðargata: Brynja - 37 íbúðir
- Hallgerðargata: Bjarg - 63 íbúðir
- Hraunbær 103 A: Dverghamrar - 60 íbúðir
- Keilugrandi 1: Búseti - 78 íbúðir
- Móavegur 2 – 4: Bjarg - 156 íbúðir
- Nýlendugata 34: Reir ehf. - 7 íbúðir
- Urðarbrunnur 130 – 134: Bjarg - 44 íbúðir
- Urðarbrunnur 33 – 35: Bjarg - 32 íbúðir
- Vesturbugt: Vesturbugt ehf. - 176 íbúðir
- Eggertsgata: Félagsstofnun - Stúdenta - 230 íbúðir
Samtals: 1.435 íbúðir
Kynningarfundur borgarstjóra
Þessar lóðaúthlutanir og fjölmörg önnur uppbyggingaráform verða kynnt nánar á opnum kynningarfundi borgarstjóra um nýjar íbúðir í Reykjavík í fyrramálið. Fundurinn verður í Tjarnarsal Ráðhússins, kl. 9-11 og þeir sem vilja geta komið hálftíma fyrr í morgunhressingu.
Fyrirlesarar munu gefa okkur greinargott yfirlit um uppbyggingu íbúða í Reykjavík, upplýsa um stöðu og þróun á húsnæðismarkaði, gefa okkur nýjar fregnir af uppbyggingu í Úlfarsárdal og segja frá hvernig ASÍ ætlar að bjóða leiguíbúðir á viðráðanlegu verði.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni reykjavik.is/ibudir