Bloomberg Philanthropies veitir Stafrænni vegferð viðurkenningu og stuðning

Stjórnsýsla

""

Stafræn vegferð Reykjavíkurborgar fær alþjóðlega viðurkenningu og fjárhagsstuðning frá Bloomberg Philanthropies. Borgin er á meðal sex borga í þriggja ára nýsköpunarverkefni sem ber nafnið „Build Back Better“ og mun fá fjárframlag upp á 2,2 milljónir bandaríkjadala til að styðja við og hraða stafrænni umbreytingu á þjónustu borgarinnar.

 

 

Reykjavík var valin úr stórum hópi borga sem sóttu um þátttöku í verkefninu „Build Back Better“ sem ætlað er að hraða stafrænni umbreytingu svo bæta megi líf og lífsgæði jarðarbúa í kjölfar heimsfaraldurs. Auk fjárstuðnings felur þáttakan í sér aðgang að heimsþekktum sérfræðingum á svið stafrænnar þróunar og alþjóðlegt samstarf. „Þetta er mikil viðurkenning á því starfi sem þegar hefur verið unnið að stafrænni vegferð til að umbylta allri þjónustu við borgarbúa,“ segir Óskar Sandholt sviðsstjóri þjónustu og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar.

Aðrar borgar sem voru valdar til þátttöku í verkefninu eru Amsterdam í Hollandi, San Francisco og Washington í Bandaríkjunum, Mexikóborg í Mexikó og Bogotá í Kólombíu.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri: „Val á Reykjavíkurborg til þátttöku í ´Build Back Better´ verkefninu sýnir að við erum á réttri leið með þá áherslu sem lögð hefur verið á stafræna umbyltingu á þjónustu við borgarbúa og við væntum mikils af samstarfinu við hinar borginnar fimm og Bloomberg Philanthropies.“

Bloomberg Philanthropies leggur áherslu á að skapa varanlegar breytingar á fimm lykilsviðum: Listir, menntun, umhverfi, nýsköpun stjórnvalda og lýðheilsu en Bloomberg Philanthropies veitti 1,6 milljörðum dala til þessa árið 2020. Styrkirnir í ár eru þeir fyrstu sem einbeita sér eingöngu að stafrænni umbreytingu. Bloomberg Philanthropies hefur fjármagnað svokölluð „i-teymi“ frá árinu 2011 til að aðstoða borgarstjóra við að knýja fram nýjar lausnir til að leysa þéttbýlisáskoranir 21. aldarinnar.

Með fjárframlagi upp á tæplega 2,2 milljónir bandaríkjadala til næstu þriggja ára verður „i-teymi“ nú sett á laggirnar hjá Reykjavíkurborg, nýsköpunarteymi sem hjálpa mun borginni að nýta frekar gögn og stafræna tækni til að bæta opinbera þjónustu og finna skapandi leiðir til að skapa verðmæti fyrir samfélagið.

Reykjavíkurborg hóf stafræna vegferð sína seinni hluta 2015 þegar farið var að kanna stafræna getu borgarinnar með framkvæmd tilraunaverkefna í afmarkaðri einingu á skrifstofu þjónustu- og rekstrar. Með stofnun Þjónustu- og nýsköpunarsviðs um mitt ár 2019 hófst formleg uppbygging stafrænnar færni innan borgarinnar. Stafræn fag- og upplýsingatækniteymi tóku að starfa þvert á starfsemi borgarinnar auk þess sem tilraunaverkefni voru sköluð upp í nothæfar lausnir. Einnig fór að myndast á ýmsum sviðum svo sem í gagnagreiningu og gervigreind með stofnun gagnateymis og stöðu gagnastjóra.