Bílaumferð um Pósthússtræti

Samgöngur

""

Pósthússtræti hefur verið opnað fyrir akandi umferð vegna framkvæmda sem standa nú yfir í Tryggvagötu við endurgerð götunnar milli Pósthússtrætis og Lækjargötu.

Miklar framkvæmdir standa nú yfir í Tryggvagötu við endurgerð götunnar milli Pósthússtrætis og Lækjargötu. Auk þess stendur samtímis yfir vinna við Bæjartorg, þar sem Bæjarins bestu hafa verið með söluskýli. Á meðan á þessum framkvæmdum stendur er lokað fyrir umferð um gatnamót Tryggvagötu og Pósthússtrætis.

Af þessum sökum hefur Pósthússtræti verið opnað fyrir akandi umferð , en alla jafna er Pósthússtræti göngugata frá 1. maí til 1. október. Ökutæki munu þá komast um Pósthússtræti til norðurs og Hafnarstræti til vesturs. Einstefnu í Hafnarstræti og Naustinni hefur verið snúið tímabundið vegna framkvæmdanna. Austurstræti, milli Pósthússtrætis og Ingólfstorgs, verður áfram göngugata til 1. október. sjá mynd með tilkynningu.