Bílaumferð dróst saman um tæplega þriðjung

Samgöngur

Umferð 24.10.23

Líkt og fólk og fréttamiðlar hafa tekið eftir hefur bílaumferð á götum borgarinnar verið með lægsta móti nú í morgun, 24. október, líklega að hluta til í tengslum við verkfall kvenna og kvár sem munu væntanlega mæta í miðborgina seinni partinn. Magn bílaumferðar milli kl. 7 og 9 í morgun var um 28% minna á 66 teljurum innan Reykjavíkur í samanburði við sama tímabil síðasta þriðjudag.

Almennt virðist vera meiri samdráttur bílaumferðar í íbúðagötum en á stofnbrautum, þó Suðurlandsbraut sé ákveðin undantekning á því.

Ekki er þó hægt að draga þá ályktun að konur og kvár standi fyrir 28% bílaumferðarinnar. Mörg hafa keyrt til vinnu í morgun og sinnt öðrum erindum. Þó er lærdómsríkt að sjá hvernig bílaumferðin hagar sér við breytingu eins og þessa í morgun.

Draga má þá ályktun að mælanlegur samdráttur í bílaumferð á háannatíma hafi mjög mikil áhrif á bæði tafartíma og upplifun fólks af fjölda akandi.

Borgarvefsjá - umferð - umferðartalningar