Bætt útivistarsvæði ásamt fræðslu um fuglalíf í Elliðaárdalnum eru meðal þeirra verkefna sem íbúar í Breiðholti völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval „Betri hverfa“ í fyrra. Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.
Óskir íbúa í Breiðholti beindust einkum að bættu umhverfi, leiksvæðum og útivistarmöguleikum jafnt fyrir menn sem dýr, en hundagerði var á óskalistanum.
-
Gerðar voru endurbætur við tjörnina í miðju Seljahverfis m.a. var sett þar nýtt leiktæki.
-
Leiktæki á skólalóð Ölduselsskóla voru endurbætt.
-
Fjarlægðir voru stálbogar sem hindruðu gangandi og hjólandi fólk.
-
Gerðar voru endurbætur á leiksvæði við Engjasel.
-
Sett voru ræsi á nokkrum stöðum á göngustíg ofan Elliðaárstíflu til að losna við klaka sem myndast í frosti.
-
Leikvellir í Seljahverfi voru endurbættir og þar voru einnig settir fleiri ruslastampar.
-
Fleiri ruslastampar voru settir upp á nokkrum stöðum í hverfinu.
-
Undirgöng undir Breiðholtsbraut við Leirubakka voru merkt betur til hagsbóta fyrir gangandi og hjólandi.
-
Hundagerði var sett upp við Arnarbakka.
-
Fræðsluskilti voru sett upp í Elliðaárdal um fuglalífið á svæðinu.
-
Öryggi á gönguleið við Arnarbakka frá Réttarbakka að Núpabakka var bætt með færslu á biðskyldumerkjum.
-
Trimmstígur og æfingaaðstaða við Bakkalund var sett upp. Þá hefur verið gengið betur frá umhverfi Bakkalundar og gróðurkerjum
komið fyrir.
-
Gróðursettir voru ávaxta- og berjarunnar á nokkrum stöðum í hverfinu t.d. við Stekkjaróló, Vesturberg, Suðurhóla og Flúðasel.
Framkvæmdafé vegna verkefna Betri hverfa í Breiðholti var í fyrra um 46 milljónir króna og verður það óbreytt í ár. Vefurinn Betri Reykjavík – Betri hverfi er nú opinn fyrir móttöku hugmynda og rökræðum íbúa vegna smærri hverfaverkefna. Í mars verður kosið um verkefni til framkvæmda.
Borgarstjóri stendur fyrir íbúafundum í öllum hverfum nú í janúar. Fundað verður í Gerðubergi þriðjudaginn 22. janúar kl. 17.