No translated content text
Fundur velferðarráðs Reykjavíkurborgar um málefni fatlaðs fólks var streymt á heimasíðu borgarinnar. Efnt var til fundarins í tilefni af því að búið er að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þeir sem vilja geta horft á fundinn hér neðst á síðunni.
Dagskrá
- Ávarp – Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs, Reykjavíkurborgar
- Þróun og áherslur í þjónustu við fatlað fólk í Reykjavík – Stefán Eiríksson, sviðsstjóri velferðarsviðs, Reykjavíkurborgar.
- Kynning á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks með áherslu á áhrif fullgildingar hans í tengslum við þjónustu sveitarfélaga- Rún Knútsdóttir, lögfræðingur í velferðarráðuneyti.
Í lok fundarins voru spurningar og umræður frá sal en gestir í sal voru frá hagsmunasamtökum, starfsmönnum á sviði velferðar í nágrannasveitarfélögum og fulltrúar frá velferðarráðuneytinu.