Áramótabrennur á tíu stöðum í Reykjavík

Brenna 2023

Nú er hlaðið í brennur eftir þeim reglum sem gilda um það sem má brenna – en það er aðeins ómálað timbur. Áramótabrennur eru alla jafna á tíu stöðum í Reykjavík.

Umsjón með þeim er ýmist á hendi borgarinnar eða félagasamtaka. Gott eftirlit og vöktun er með brennum og svo er slökkt í þeim tímalega um kvöldið.

Hvar verða brennur í Reykjavík?

Kveikt verður á áramótabrennum á gamlárskvöld.

  • Við Ægisíðu, lítil brenna, kl. 20:30.
  • Í Skerjafirði gegnt Skildinganesi 48-52, lítil brenna, tendrað kl. 21:00.
  • Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna, kl. 20:30.
  • Laugardalur, fyrir neðan Laugarásveg 18, lítil brenna, kl. 20:30.
  • Geirsnef, á norðanverðu Geirsnefi, stór brenna, kl. 20:30.
  • Við Jafnasel, lítil brenna, kl. 20:30.*
  • Við Rauðavatn að norðanverðu, lítil brenna, kl. 20:30.
  • Gufunes við Gufunesbæ, stór brenna, kl. 20:30.
  • Við Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna, kl. 20:30.
  • Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna (tendrað kl. 15:00)

*Brenna sem hefur verið við Suðurfell fellur niður því þar er nú framkvæmdasvæði vegna gerðar Arnarnesvegar. Lítil brenna verður í staðinn við Jafnasel kl. 20:30 og verður brennutími ein klukkustund. 

Fyrirvari um veðurspá

Sýslumaðurinn í Reykjavík staðfestir útgáfu brennuleyfa og fyrir hádegi á gamlársdag er veðurspá skoðuð og ákvörðun tekin um hvort það megi tendra um kvöldið.