Áhugasamir Árbæingar um nýtt aðalskipulag
Rúmlega 30 íbúar í Árbænum mættu á opinn fund um nýtt aðalskipulag sem haldinn var í Fylkishöllinni í gær. Fundurinn var sá næst síðasti í röðinni af alls tíu fundum sem eru haldnir í öllum hverfum borgarinnar. Fundirnir bera yfirskriftina Borg fyrir fólk – betri hverfi og er farið yfir áherslur í hverfum og breytingar á aðalskipulagi. Síðasti fundurinn er síðan eftir páska en þá lýkur fundaröðinni í miðborginni. Á fundunum þá gefst íbúum kostur á að koma með hugmyndir sem teknar verða til álita af skipulagsyfirvöldum og hafa margar góðar hugmyndir litið dagsins ljós á öllum fundum.
Páll Hjaltason formaður skipulagsráðs og Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar héldu inngangserindi á fundinum um aðalskipulagið. Haraldur Sigurðsson, skipulagsfræðingur, fjallaði síðan um helstu áherslur í skipulagsmálum í nýju aðalskipulagi. Í Árbænum er almennt um að ræða óverulegar breytingar frá gildandi aðalskipulagi. Þó er allnokkur aukning byggingarmagns á atvinnusvæðum í jaðri hverfisins, einkum í Hálsahverfi. Í tillögunum er gert ráð fyrir þéttingu byggðar við Rafstöðvarveg, í jaðri Ártúnsholts og við Brekknaás og gert er ráð fyrir íbúðum á efri hæðum í þjónustukjörnum í hverfinu. Mun skýrari stefna er um opin svæði, minni græn svæði fest í sessi og ákveðnari mörk útivistarsvæðis í Elliðaárdal. Einnig er lagt til að helstu verslunar- og þjónustulóðir verði festar í sessi og mörkuð ákveðin stefna um alla þjónustukjara.
Að lokinni kynningu á aðalskipulagi gátu fundarmenn raðað sér niður í hópa allt eftir áhugasviði, t.d. opin svæði og íþróttir, samgöngur, þétting byggðar o.fl. til þess að ræða hin ýmsu mál og koma með tillögur að því sem betur má fara í Árbænum. Helstu umræðuefni sem komu upp voru t.a.m. ný stúka við Fylkisvöllinn, skoðanir með og á móti þéttingu byggðar í Elliðaárdalnum og það að uppbygging í dalnum spili með og styðji við útivistina í dalnum. Nefndar voru óskir um lítil sérbýli fyrir eldri borgara sem vilja minnka við sig án þess að flytja úr hverfinu. Samgöngur og tengingar göngu- og hjólaleiða milli Seláss og Norðlingaholts þarf að bæta og koma upp göngu- og hjólabrú milli Seláss og Norðlingaholts. Einnig voru nefndar hugmyndir um vegtengingu milli Hádegismóa og Grafarholts ásamt því að finna þyrfti framtíðarsvæði fyrir hestamenn til viðbótar við Víðidal.