Aðalskipulag Reykjavíkur
Í tilefni af endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur er boðað til opinna húsa í öllum hverfum borgarinnar á næstu vikum.
Fundurinn í þínu hverfi verður fimmtudaginn 22. mars, kl. 17 í Hlöðunni, Gufunesbæ.
Dagskráin er eftirfarandi :
- Markmið og leiðarljós nýs aðalskipulags (sjá meðfylgjandi kynningarrit).
- Hugmyndir um þróun og uppbyggingu í þínu hverfi - Þétting - samgöngur - opin svæði!
- Vinnuhópar: hugmyndir rýndar.
Barnasmiðja verður á staðnum og eru börn sérstaklega velkomin.
Fundurinn er annars öllum opinn.
Með von um að þú hafir tíma til að leggja þitt af mörkum inn í umræðuna.