7,7 milljarða afgangur hjá samstæðunni

Fjármál

""

Hálfs árs uppgjör Reykjavíkurborgar sýnir sterkan rekstur en samstæða borgarinnar var rekin með 7,7 milljarða króna afgangi fyrstu sex mánuði ársins. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, sem lagt var fram í borgarráði í dag, var jákvæð um 7,7 milljarða en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á 6,6 milljarða króna. Rekstrarniðurstaðan er því 1.177 milljón krónum betri en gert var ráð fyrir. Betri rekstrarniðurstöðu má einkum rekja til hærri tekjufærðra matsbreytinga fjárfestingaeigna Félagsbústaða.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir niðurstöðuna góða einkum í ljósi þess að merki séu um samdrátt í hagkerfinu. „Tölurnar í rekstrinum eru allar á grænu og staða borgarinnar sterk. Við höfum verið að bæta fjármagni í skólamálin og velferðarmálin jafnt og þétt en á sama tíma erum við í stórum og miklum fjárfestingum um alla borg til dæmis í skólabyggingum, íþróttamannvirkjum, götum, torgum og hjólastígum. Árshlutauppgjörið gefur ágætar vísbendingar um framhaldið en við þurfum að halda vel á spöðunum áfram,“ segir Dagur.   

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1.653 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 2.318 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því 665 mkr lakari en gert var ráð fyrir.  Lakari rekstrarniðurstaða skýrist einkum af lægri tekjum af sölu byggingarréttar, lægri skatttekjum og hærri gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga en áætlun gerði ráð fyrir.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 1.811 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 3.188 mkr eða 1.377 mkr undir áætlun.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok júní 673 milljörðum króna, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 343 milljarðar króna og eigið fé var 330 milljarðar króna en þar af var hlutdeild meðeigenda 17,5 milljarður króna. 

Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er nú 49% en var 49,4% um síðustu áramót.

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, sem heldur utan um rekstur fagsviða og Eignasjóð.

Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru:  Orkuveita Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar jan-júní 2019