52 námsmannaíbúðir bætast við í Grafarholti

Framkvæmdir Skipulagsmál

""

Námsmannaíbúðum á vegum Byggingarfélags námsmanna mun fjölga um 52 í Grafarholti samkvæmt nýju deiliskipulagi.

Borgarráð hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem Kanon arkitektar hafa gert fyrir hönd Byggingarfélags námsmanna. Breytt deiliskipulag við Klausturstíg 1-11 og Kapellustíg 1-13  í Grafarholti gerir ráð fyrir að námsmannaíbúðum á lóðinni fjölgi um 52 en þar eru nú þegar  200 íbúðir.

Byggð verða fjögur ný hús á lóðunum ásamt geymslu fyrir starfsemi byggingarfélags námsmanna. Byggingarmagn á lóðinni verður aukið um 3.300 fermetra, úr 11.000 fermetrum í 14.300 fermetra.

Gert er ráð fyrir 0,8 bílastæðum á hverja íbúð eða 202 stæðum og hjólastæði fyrir a.m.k. einu reiðhjóli í hjólageymslu eða hjólastæði fyrir hverja íbúð á lóðinni.

Aðstaða til flokkunar sorps skal vera á lóðinni í tilheyrandi sorpskýlum.

Skipulagsuppdrættir