40% ökutækja á nöglum í Reykjavík

Sleppum nöglum

Hlutfallið milli negldra og ónegldra dekkja í janúar 2024 var þannig að 40,3% ökutækja voru á negldum dekkjum og 59,7% var á öðrum dekkjum. Hlutfallið  var talið og reiknað miðvikudaginn 24. janúar. 

Hlutfallið hefur því hækkað nokkuð frá síðustu talningu í desember 2023 þegar það var 34,9%.

Ekki náðist að telja á svipuðum tíma í fyrra, en fyrir tveimur árum var hlutfallið 41,5%. Fyrir þremur árum var það 40,0%.

Hlutfallið í ár er því sambærilegt og það hefur verið síðastliðin ár, á þessum árstíma.

Á meðfylgjandi gröfum má sjá frekari niðurstöður talninga síðastliðin ár.

Talning í janúar 2024