23 fá styrk úr Menningarnæturpotti Landsbankans

Menning og listir Mannlíf

""

Alls fengu 23 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans í ár. Veittir voru styrkir á bilinu 100 - 400 þúsund kr. til einstaklinga og hópa, samtals fjórar milljónir króna.

Nú stendur yfir undirbúningur Menningarnætur og dagskráin fyrir hátíðina er að taka á sig mynd. Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans sem hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi. Landsbankinn mun til viðbótar við styrkina standa fyrir árvissri dagskrá í útibúi sínu í Austurstræti á Menningarnótt.

Alls sóttu 70 um styrk í pottinn að þessu sinni og  valdi starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar 23 styrkþega og verður hægt að sjá afrakstur þeirra á Menningarnótt 24. ágúst nk.

Styrkþegar Menningarnæturpotts Landsbankans 2019:

Styrkir að upphæð 100.000 kr.

Tanja Levý og Valdís Steinarsdóttir
Brauðtertan lifir - samkeppni
Efnt verður til brauðtertukeppni. Dæmt verður um útlit brauðtertunnar í þremur flokkum; Fallegasta, frumlegasta og fyndnasta. Verðlaun verða veitt fyrir sigurvegara hvers flokks.
100.000 kr.

Ingibjörg Hjartardóttir

Kvæðakonan góða
Kvæðakonan góða er hópur 11 kvenna sem hafa verið að kveða undir stjórn dr. Ragnheiðar Ólafsdóttur söngkonu og kvæðakonu. Dagskráin samanstendur af rímnakveðskap eftir konur.

100.000 kr.

Borgarsögusafn Reykjavíkur

Fljúgandi fiskar! Flugdrekasmiðja

Arite Fricke listkennari og hönnuður verður með vandaða flugdrekasmiðju fyrir fjölskyldur á Sjóminjasafninu í Reykjavík. Flugdrekarnir taka á sig líki fisks og þátttakendur verða hvattir til þess að láta hugmyndaflugið ráða för við sköpunina.

100.000 kr.

Capoeira Mandinga á Íslandi

Capoeira á Menningarnótt

Boðið verður upp á fjölbreytta sýningu á Capoeira, sem er afró-brasilísk bardagalist með fimleikaívafi og leyfa krökkum sem æfa Capoeira að vera í forgrunni. Ennfermur verða sýndir fjórir barsilískir þjóðdansar.

100.000 kr.

Guja Sandholt

Stysta ópera í heimi

King Harold's Saga eftir skoska tónskáldið Judith Weir er 10 mínútna ópera í þremur þáttum. Óperan er skrifuð fyrir einn sópran sem fer með 8 mismunandi einsöngshlutverk sem og hlutverk norska hersins. Efniviðurinn er sóttur í Heimskringlu Snorra Sturlusonar og byggður ásögunni um Harald harðráða.

100.000 kr

Skylmingarfélagið Væringjar

Sverð og Riddaramennska: Kynning á sögulegum evrópskum skylmingum  
Skylmingafélagið Væringjar verður með sýningarbardaga og kynningu á aðeins öðruvísi skylmingum en flestir eru vanir, nefnilega með þýskum tveggja handa sverðum og öðrum evrópskum sverðum. Þessi íþrótt er stunduð um alla Evrópu og Bandaríkin og er hún þekkt undir nafninu HEMA (e. Historical European Martial Arts), eða sögulegar evrópskar bardagalistir
100.000 kr.

Renata Pratusyte
Heimsálfarnir syngja saman á Menningarnótt
Alþjóðlegum barnakór verður safnað saman á Menningarnótt og börnum skapaður skemmtilegur vettvangur til að kynnast öðrum tungumálum, tónlist og menningarháttum ásamt því að verða virk í starfinu með því að kynna sitt eigið tungumál og þjóð.
100.000 kr.

Freyja Eilíf Helgudóttir

Sýningarleiðsla

Á Menningarnótt mun Ekkisens bjóða gestum og gangandi inn í sýningarleiðslu, innsetningu þar sem lifandi verk eftir þrjá mismunandi listamenn taka utan um hvern og einn gest og fylgja inn í leiðandi ástand í gegnum skúlptúrísk húsgögn, hljóðverk, gjörningaverk og lifandi listaverk í formi veitinga.

100.000 kr

Borgarsögusafn Reykjavíkur

Karlakórinn Fóstbræður í varðskipinu Óðni

Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar mun flytja kröftugan söng um borð í varðskipinu Óðni á Menningarnótt.

100.000 kr

Steinunn Erla Thoroddsen

Lifandi tónlist í portinu á Vatnsstíg 5

Hugmyndin er að opna portið fyrir almenning í fyrsta skipti í mörg ár.

Þetta er frábær staður fyrir ljúfa tónleika og það komast líklegast um 50-80 manns þarna fyrir. Margir ganga niður Vatnsstíginn, sérstaklega á dögum eins og Menningarnótt og þá munu margir heyra í tónlistinni og flykkjast að.

100.000 kr

Kólguský áhugamannafélag, fyrir hönd þjóðlagasveitarinnar Kólgu

Glaðlegir söngvar um dauðann

Þjóðlagahljómsveitin Kólga og Haukur Ingi Jónasson guðfræðingur bjóða upp á dagskrá undir yfirskriftinni - Glaðlegir söngvar um dauðann í Dómkirkjunni í Reykjavík á Menningarnótt. Þar verður blandað saman tónlist af efnisskrá hljómsveitarinnar um þetta viðfangsefni og heimspekilegum vangaveltum guðfræðingsins um dauðann á milli laga.

100.000 kr

Styrkir að upphæð 150.000 kr.

Þrjú skáld

Ljóðaþjónusta - Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Fríða Ísberg og Kött Grá Pje

Úti á götu verða þrjú borð, við hvert borð situr skáld með ritvél og autt sæti gegnt því. Vegfarendur setjast niður, skáld býður vegfarandanum að velja sér efnistök fyrir ljóðið og skrifar það síðan á staðnum. Þessi þjónusta yrði í boði í þrjá klukkutíma.

150.000 kr

Tara Njála Ingvarsdóttir og Silfrún Una Guðlaugsdóttir

Það Rignir

Á Menningarnótt verður gjörningakvöldið „Það Rignir” í Vatnshelda galleríinu. Öll verkin eru vatnsheld og verður regnvél í galleríinu sem framkallar rigningu á meðan á gjörningakvöldinu stendur. Mismunandi rigning verður fyrir hvern gjörning í samráði við hvern listamann fyrir sig.

150.000 kr.

Styrkir að upphæð 200.000 kr.

Kristín Edda Gylfadóttir

Sjúkrahústrúðarnir

Kristín Edda Gylfadóttir er faglærður ljósmyndari sem hefur verið að taka myndir af Sjúkrahústrúðunum sem mæta vikulega á Barnasapítala Hringsins og heilsa þar upp á börnin. Kristín mun halda ljósmyndasýningu á Menningarnótt. Trúðarnir munu koma og skemmta börnum og aðstandendum.

200.000 kr

Benóný Ægisson

Tónleikar í Leynigarðinum

Tónleikar í garði að Skólavörðustíg 4c fyrir börn. Garðurinn er gróinn og töfrandi og dagskráin sett upp með fernum stuttum atriðum. Tvö atriðanna eru sérstaklega sett saman fyrir krakka og hin tvö eru mjög aðgengileg.

200.000 kr

Brynja Pétursdóttir

Dans Brynju Péturs: Street dans Carnival

Kraftmikil danssýning með hópi hæfileikaríkra street dansara á öllum aldri. Fjölbreytt sýning með ólíkum dansstílum, mikilli orku og smitandi stemningu.

200.000 kr

FAR Fest Afríka Reykjavík /Afrika Lole

FAR Fest Afríka Reykjavík

Haldnir verða tónleikar í Lucky Record  þar sem afrískt, norrænt og íslenskt tónlistarfólk tekur höndum saman og flytur frumsamda afríska tónlist og tónlist með afrísku ívafi fyrir gesti og gangandi.

200.000 kr.

Sigurþór Hallbjörnsson
Rokk og ról og mótorhjól á Granda

Hressandi Rokk og ról tónleikar og mótorhjólasýning á Grandanum.

200.000 kr.

Styrkir að upphæð 300.000 kr.

Lúðrasveitin Svanur
Lúðrasveitir berjast

Þrjár stærstu lúðrasveitir borgarinnar mætast með sitt besta lið og berjast þar til yfir lýkur. Baráttan fer fram með lúðrum og slagverki. Sú sveit sigrar sem hæst hefur og spilar best. Sigurvegarinn er krýndur og gestir leystir út með grillveislu þar sem sigursveitin eru heiðursgestir en hinir spila undir í veislunni þeim til heiðurs.
300.000 kr.

Hringleikur - sirkuslistafélag
Sirkustorg og sýning Æskusirkusins
Sirkussýning og smiðjur, opið gestum og gangandi til að prófa sirkuslistir.
300.000 kr

Hits & Tits
Tjúttað við taflið - Karaokepartý
Hits & Tits standa fyrir hinu klassíska útikaraoke á Menningarnótt þar sem stuð og gleði ráða ríkjum í berlínsku karaokepartýi um hábjartan dag.
300.000 kr.

Styrkir að upphæð 400.000 kr.

Sólveig Ólafsdóttir
Leiðin milli leiða - ljóð og sögur í Hólavallagarði

Um er að ræða tveggja tíma ljóða- og sögugöngu um Hólavallagarð, gamla kirkjugarðinn við Suðurgötuna. Leiðsögumenn eru Heimir Björn Janusarson umsjónarmaður Hólavallagarðs og Sólveig Ólafdóttir sagnfræðingur. Einnig koma fram ljóðskáldin Guðrún Rannveig Stefánsdóttir, Pétur Gunnarsson, Sjón, Elísabet Jökulsdóttir og fleiri sem öll hafa ort ljóð um Hólavallagarð.
400.000 kr.