Yfirlýsing frá Skólamat ehf.

Skólamatur ehf.

Aðskotahlutur fannst í hádegisverði frá Skólamat ehf. á fjórum leikskólum Reykjavíkurborgar í dag og tvö önnur tilvik komu upp í öðrum sveitarfélögum. Starfsfólk leikskólanna brást strax við og tilkynnti atvikið til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

Leikskólarnir sem um ræðir eru Hraunborg, Borg, Ævintýraborg við Eggertsgötu og Blásalir. Starfsfólk leikskólanna hafði strax samband við Heilbrigðiseftirlitið og tilkynnti atvikið. Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðiseftirlitinu er engin hætt á ferðum, en skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar harmar að þetta hafi gerst. 

Skólamatur ehf. hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: 

Yfirlýsing vegna fráviks í aðkeyptu hráefni

Í dag bárust Skólamat tilkynningar um skordýr í hrísgrjónum sem notuð höfðu verið við matargerð. Um er að ræða frávik sem fannst í aðkeyptu hráefni frá fyrirtækinu Garra en ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að rekja megi frávikið til framleiðslu, matseldar, framreiðslu eða hreinlætis hjá Skólamat.

Um leið og umfang málsins varð ljóst voru viðbragðsferlar virkjaðir. Viðkomandi hráefni var tekið úr notkun, því fargað og rekjanleiki staðfestur. Tilkynningar hafa nú borist frá sex skólum. Málið hefur jafnframt verið tekið upp við birgja.

Heilbrigðiseftirlitið var upplýst um málið og kom á starfsstöð Skólamatar til að fara yfir aðstæður og verklag. Engar athugasemdir voru gerðar á vettvangi að lokinni þeirri skoðun.

Staðfest er að ekki stafaði heilsufarsleg hætta af atvikinu. Það breytir því ekki að við lítum málið alvarlegum augum og hörmum það mjög. Við bregðumst við af festu þegar frávik kemur upp, óháð því hvar uppruna þess er að finna.

Viðbrögð Skólamatar hafa miðað að því að stöðva notkun hráefnisins, rekja það, kanna umfang málsins, upplýsa viðeigandi aðila og tryggja að frekari dreifing ætti sér ekki stað.

Matvælaöryggi og gæði eru grundvallaratriði í starfsemi Skólamatar. Við höfum því farið yfir atburðarásina og viðbrögð okkar frá því fyrsta tilkynning barst og munum fylgja málinu áfram eftir með umræddum birgja og eftirlitsaðilum.

Við hörmum innilega atvikið sem átti sér stað í dag og ítrekum enn fremur að atburðir dagsins tengjast ekki framleiðslu, framreiðslu og verkferlum Skólamatar heldur fráviki í aðkeyptu hráefni.

Sjá yfirlýsinguna á heimasíðu Skólamatar ehf.