Vonskuveður á fimmtudag hefur áhrif á þjónustu Reykjavíkurborgar
Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins mælist eindregið til þess að fólk haldi sig heima á meðan vonskuveður sem spáð er á morgun, fimmtudaginn 26. mars, gengur yfir. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi frá klukkan 7:00 – 13:00 og má búast við mikilli ofankomu og afleitu skyggni.
Allt tiltækt starfsfólk vetrarþjónustunnar verður að störfum í nótt um leið og snjóa tekur, en veðurspár gefa til kynna að það muni hefjast um klukkan 05:00. Eins og segir í tilkynningu frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins má gera ráð fyrir að veðrið verði orðið skaplegt strax eftir hádegi og er lagt til að fólk fresti ferðum sínum fram að þeim tíma að minnsta kosti. Með þessu móti gefst líka miklu betra tækifæri til að ryðja snjó af vegum, en slíkt er afar erfitt ef margir bílar eru fastir í ófærð.
Frekari upplýsingar varðandi færð og veður má nálgast á upplýsingasíðum Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar.
Einhver röskun verður á þjónustu Reykjavíkurborgar á meðan versta veðrið gengur yfir og veðurviðvörun er í gildi. Áhersla verður lögð á að koma í veg fyrir að þjónusta við viðkvæma hópa skerðist.
Þjónustuver Reykjavíkurborgar verður opið á hefðbundnum tíma og verður hægt að hafa samband í gegnum síma eða netspjall.
Skóla- og frístundastarf
Veruleg röskun verður á skólastarfi. Í grunn- og leikskólum verður eingöngu lágmarksopnun með fáu starfsfólki. Þau sem nauðsynlega þurfa að fara með börn sín í grunnskóla og leikskóla eru beðin um að tilkynna skólastjórnendum um komu barns með tölvupósti.
Hefðbundið leikskóla- og frístundastarf hefst eftir að viðvörun fellur úr gildi. Fólk er hvatt til að fylgjast með fjölmiðlum.
Velferðarþjónusta
Heimaþjónusta – Tafir gætu orðið á heimaþjónustu Reykjavíkurborgar. Þjónustu verður forgangsraðað eftir mikilvægi.
Félagsstarf – Félagsmiðstöðvar velferðarsviðs verða opnar en gera má ráð fyrir röskun á dagskrá.
Matarþjónusta – Veður hefur ekki áhrif á heimsendingu matar, þar sem matur er sendur heim á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Stefnt er að því að hafa matarþjónustu í félagsmiðstöðvum, sé þess kostur.
Málaflokkur heimilislausra – Neyðarskýlin þrjú fyrir heimilislaust fólk loka ekki milli 10 og 17 eins og vant er, heldur stendur gestum til boða að vera inni yfir daginn.
Málaflokkur fatlaðs fólks – Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk verður í lágmarki og því ljóst að veruleg röskun verður á starfi meðan veðurviðvörun er í gildi.
Aðrir starfsstaðir – Önnur starfsemi velferðarsviðs verður með hefðbundnum hætti. Miðstöðvar Reykjavíkurborgar verða opnar en fólk er eindregið hvatt til þess að nota símann frekar en að koma á staðinn í dag. Síminn er 411 1111.
Menningar- og íþróttasvið
Söfn og menningarhús - Búist er við að söfn og menningarhús borgarinnar, þar með talin bókasöfn, listasöfn, borgarsögusöfn, og Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn, muni opna á fimmtudag eftir að veðurviðvörun fellur úr gildi.
Sundlaugar og Ylströndin– Sundlaugar Reykjavíkurborgar verða lokaðar á meðan appelsínugul veðurviðvörun er í gildi.