Vitundarvakning um sýklalyfjaónæmi – Skissum sýklalyfjaónæmi

Dýralæknar hjálpa til við að passa upp á heilsu allra - Hugleikur Dagsson
Verk eftir Hugleik Dagsson sem er á sýningunni í Austurstræti

Um helgina var opnuð sýning á sýningastöndum í Austurstræti sem ber heitið Skissum sýklalyfjaónæmi. Sýningin er liður í alþjóðlegri vitundarvakningu um sýklalyfjaónæmi og mikilvægi þess að varðveita virkni sýklalyfja fyrir komandi kynslóðir. 

30 listamenn, þar á meðal Hugleikur Dagsson, fjalla með skapandi og myndrænni framsetningu um sýklalyfjaónæmi og áhrif þess á lýðheilsu, samfélög og vistkerfi um allan heim. Listamennirnir gera þetta flókna viðfangsefni aðgengilegra fyrir almenning og benda um leið á mikilvægi þess að vernda virkni sýklalyfja til framtíðar og er yfirskrift sýningarinnar Skissum sýklalyfjaónæmi.

Sýklalyf virka ekki á vírussýkingar - verk eftir Gatis Sluka
Sýklalyf virka ekki á vírussýkingar - verk eftir Gatis Sluka

Verkin verða sýnd utandyra á sýningarstöndum í Austurstræti í sumar og gefa vegfarendum þannig tækifæri til að staldra við í daglegu amstri og upplifa sýninguna í almannarými.  Embætti landlæknis, og Sóttvarnarlæknir eru í forsvari fyrir átakinu hérlendis.

Sýklalyfjaónæmi – vaxandi alþjóðlegt vandamál

Eitt af mikilvægustu verkefnum samtímans er að varðveita virkni sýklalyfja fyrir komandi kynslóðir. Ef það á að takast þarf að ráðast í víðtækar aðgerðir og setja metnaðarfull markmið í baráttunni við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Sýklalyfjaónæmi er vaxandi alþjóðlegt vandamál og er ein stærsta heilbrigðisógn sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag. 

Ekki deila sýklalyfjaskammti með öðrum - Alfie Gatt
Ekki deila sýklalyfjaskammti með öðrum - Alfie Gatt

Ísland tekur þátt í verkefninu EU-JAMRAI 2, sem er sameiginlegt átak Evrópuríkja gegn sýklalyfjaónæmi og sýkingum tengdum heilbrigðisþjónustu (e. European Joint Action on Antimicrobial Resistance and Healthcare-Associated Infections). Sýningin í Austurstræti er liður í alþjóðlegu átaki á vegum samtakanna.