Vilt þú vera í næsta Jafningjafræðsluhópi Hins hússins?

Jafningjafræðarar 2025 - 2026
Jafningjafræðarar 2025

Jafningjafræðsluhópur Hins hússins 2025-2026 hefur verið virkur í öflugu forvarnarstarfi með ungu fólki frá því að hópurinn hóf störf síðastliðið vor. Starfsárinu  fer að ljúka og búið að opna fyrir umsóknir fyrir sumarstarfið 2026. Öll ungmenni 16–19 ára með lögheimili í Reykjavík geta sótt um þetta skemmtilega, gefandi og lærdómsríka sumarstarf. 

Hvað er Jafningjafræðsla Hins hússins? 

Jafningjafræðslan er fræðslu- og forvarnarstarf þar sem ungmenni fræða önnur ungmenni á jafningjagrundvelli. Starfið hefur verið starfrækt í Hinu húsinu frá árinu 1996 og byggir á þeirri hugmyndafræði að ungir einstaklingar nái oft betur til jafnaldra sinna en fullorðnir. 

Jafningjafræðarar fá vandaða þjálfun fyrir starfið, meðal annars í leiðtogahæfni og framkomu auk fyrirlestra frá sérfræðingum um málefni sem snerta ungt fólk í dag. Starfið veitir ungmennum einstakt tækifæri til að efla sjálfstraust, læra nýja færni og hafa jákvæð áhrif á jafnaldra sína. 

Á sumrin heimsækja jafningjafræðarar vinnuskóla- og félagsmiðstöðvahópa í Reykjavík og leiða fræðslu í gegnum hópefli, leiki, samtöl og spurningar. Fjallað er um málefni sem skipta ungmenni máli í dag líkt og fordóma, hinsegin málefni, kynlíf, mörk, áfengi og vímuefni,  spilafíkn og samfélagsmiðla svo dæmi séu tekin. 

Viðburðaríkt ár 

Síðastliðið sumar fræddu jafningjafræðarar um 1500 unglinga á höfuðborgarsvæðinu og héldu einnig fræðslur fyrir vinnuskólahópa í Vestmannaeyjum, á Hellu og á Hvolsvelli. 

Í vetur hafa jafningjafræðarar einnig farið í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu og veitt nýnemum jafningjafræðslu, meðal annars í Borgarholtsskóla, Fjölbrautarskólanum í Ármúla, Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, Kvennaskólanum í Reykjavík, Menntaskólanum við Hamrahlíð, Menntaskólanum við Sund, Verslunarskóla Íslands og Fjölbrautaskólanum í Mosfellsbæ. 

Jafningjafræðarar í hópefli í fyrra sumar.
Jafningjafræðarar í hópefli í fyrra sumar.

Eftir sumarið og öll samtölin við unglinga borgarinnar eru Jafningjafræðar hvers árs með góða yfirsýn yfir hvað brennur á unglingum í dag og hvaða áskoranir þau eru að kljást við. Fjölmörg tækifæri komu í kjölfar sumarstarfsins og hefur hópurinn tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum, heimsótti Bessastaði þar sem rætt var við forseta Íslands um málefni ungs fólks, hitt borgarstjórann okkar Heiðu Björgu í ráðhúsinu og hélt vel heppnaða vímuefnalausa götuhátíð til styrktar neyðarsöfnun UNICEF fyrir börn á Gaza. 

Á starfsárinu hafa Jafningjafræðarar einnig miðlað reynslu sinni á ýmsum vettvangi, meðal annars á fundum, málþingum og í fjölmiðlum. Í febrúar fór hópurinn í Erasmus+ ferð til Verbania á Ítalíu þar sem hann kynnti sér jafningjafræðslu á Ítalíu og stöðu ungmenna þar, ásamt því að miðla okkar reynslu. 

Frábært tækifæri fyrir ungmenni 

Nú er opið fyrir umsóknir í Jafningjafræðslu Hins hússins 2026.  Við hvetjum öll áhugasöm ungmenni til að senda inn umsókn hér - ert þú næsti Jafningjafræðari Hins hússins?