Viðhaldslokanir sundlauga Reykjavíkur í sumar
Komið er að árlegum viðhaldslokunum í sundlaugunum í Reykjavík. Viðhaldslokanir fara fram á sumrin þar sem ekki er hægt að sinna viðhaldi utanhúss á veturna.
Í viðhaldslokunum er farið í viðgerðir á mannvirkjum, málun, múrvinnu og almennt viðhald sem ekki er hægt að framkvæma á opnunartíma.
Viðhaldslokanir í sundlaugum Reykjavíkur í sumar:
Sundhöll: 26. maí – 21. júní
Árbæjarlaug: 8. – 15. júní
Dalslaug: 1. – 7. júní
Grafarvogslaug: 15. – 23. júní
Vesturbæjarlaug: 23. júní – 30. júní
Klébergslaug: 24. – 30. ágúst
Laugardalslaug: 24. – 30. ágúst
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum tillitssemina.