Viðburðapottur jólaborgarinnar 2026 – umsóknir óskast
Undirbúningur fyrir jólahátíðina er nú að hefjast og búið að opna fyrir umsóknir í viðburðapott jólaborgarinnar.
Viðburðirnir lífga upp á miðborgina
Markmið verkefnisins er að efla mannlíf og styðja við fyrirtæki; verslun, veitingastaði og aðra þjónustu á svæðinu. Viðburðirnir lífga upp á miðborgina borgarbúum og gestum til ánægju og yndisauka á aðventunni.
Þau sem hafa í hyggju að efna til viðburða í desember geta sótt um styrk í pottinn að hámarki 400 þúsund krónur.
Helstu skilyrði fyrir styrkveitingu:
- Verkefnið skal fara fram í miðborginni.
- Verkefnið skal glæða borgina lífi og varpa ljósi á fjölbreytileika miðborgarinnar
- Verkefnið skal fara fram á tímabilinu frá 1.-23. desember.
- Margir fái að njóta, höfði til alls aldurs og sé þátttakendum að kostnaðarlausu.
- Ekki eru veittir styrkir vegna jólamarkaða ýmis konar né markaðssetningu einstaka reksturs.
Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2026.
Ef frekari upplýsingar er óskað vinsamlegast sendið tölvupóst á midborgin@reykjavik.is