Vetrarhátíð 2026 er á næsta leiti

Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti á Vetrarhátíð 2025
Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti á Vetrarhátíð 2025

Vetrarhátíð verður haldin dagana 5.-8. febrúar næstkomandi. Undirbúningur fyrir hátíðina er í fullum gangi og  fjöldi listamanna, bæði erlendir og innlendir, taka þátt í að skapa einstaka stemningu.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og ætti engum að leiðast.

Vetrarhátíð lífgar upp á borgarlífið á dimmustu vetrarmánuðunum með því að tengja saman ólíka menningarlega þætti sem allir tengjast þema hátíðarinnar, ljósi og myrkri. 

Hátíðin samanstendur af þremur meginstoðum: ljósaslóð, Safnanótt og  Sundlauganótt.

Ljóslistaverk mynda skemmtilega ljósaslóð á Vetrarhátíð í ár. Á annan tug verka lýsa upp skammdegið og mynda skemmtilega gönguleið frá Hallgrímskirkju að Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 6. febrúar en þá opna söfn á höfuðborgarsvæðinu dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá. 

Sundlauganótt verður haldin laugardaginn 8. febrúar í völdum laugum höfuðborgarsvæðisins. Gestir fá óvenjulega kvöldstund í mögnuðu myrkri.

Sjáumst!

Allar nánari upplýsingar um dagskrá Vetrarhátíðar má nálgast á vetrarhatid.is