Verum viðbúin – eflum viðbúnað heimilanna

Reykjavík í haustlitum Ragnar Th. Sigurðsson
Reykjavík í haustlitum séð úr lofti frá Elliðaárdal

Eigum nauðsynjar til þriggja daga, gerum einfalda heimilisáætlun og hugum að nágrönnum eru meðal hagnýtra upplýsinga í bæklingnum Verum viðbúin frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Þar eru gefin ráð sem hjálpa fólki að búa sig undir röskun á daglegu lífi vegna náttúruhamfara, rafmagnsleysis eða annarra alvarlegra atburða. 

Bæklingurinn er aðgengilegur á vefnum verumvidbuin.is á íslensku, ensku og pólsku  auk útgáfu á auðlesnu máli og táknmálstúlkun. Allir íbúar á Íslandi 18 ára og eldri hafa fengið hlekk á bæklinginn í gegnum island.is

Í bæklingnum er mælt með að heimili geti séð fyrir grunnþörfum heimilisfólks í að minnsta kosti þrjá daga. Meðal þess sem gott er að hafa tiltækt er:

  • Vatn til drykkjar og matargerðar
  • Geymsluþolinn mat og dósaopnara
  • Nauðsynleg lyf og skyndihjálpartösku
  • Vasaljós, rafhlöður og hleðslubanka
  • Útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum
  • Hlý teppi og hreinlætisvörur
  • Reiðufé og útprentaðan lista yfir mikilvæg símanúmer
Verum viðbúin

Bæklingurinn er afar hagnýtur enda hafa eldgos, jarðskjálftar, snjóflóð, óveður og aðrir atburðir minnt á mikilvægi þess að einstaklingar og fjölskyldur séu undirbúin þegar óvæntar aðstæður skapast.   

Við hvetjum því fólk til að kynna sér efni bæklingsins og einnig vefinn verumvidbuin.is.

Hugsum um öryggið og skipuleggjum okkur eins og bæklingurinn ráðleggur okkur.