Verkefnið er að ná stjórn á rekstri borgarinnar

Ráðhús Reykjavíkur

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar-júní 2026 var afgreiddur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 10. september. 

Miklar áskoranir blasa við í rekstri borgarinnar, halli er af rekstri bæði samstæðu og borgarsjóðs en hagræðingaraðgerðum er ætlað að mæta hallarekstrinum.

Rekstrarniðurstaða samstæðu neikvæð um 5,5 milljarða

Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var neikvæð um 5,5 millljarða króna sem var 10,6 milljörðum króna lakari niðurstaða en á sama tímabili árið 2025. Í áætlun var gert ráð fyrir 6,7 milljarða króna rekstrarafgangi. Matsbreyting fjárfestingaeigna Félagsbústaða var neikvæð á tímabilinu um sem nemur 2,3 milljörðum króna sem hafði neikvæð áhrif á niðurstöður rekstrar.

Fjármagnsgjöld (nettó) námu 19,7 milljörðum króna eða 5,6 milljörðum króna hærri á fyrstu sex mánuðum þessa árs en þess síðasta. Vísitala neysluverðs hefur hækkað meira frá áramótum en áætlað var eða um 3,74% í stað 1,75%. 

Borgarsjóður rekinn með halla fyrstu sex mánuði ársins

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 3,2 milljarða króna fyrstu sex mánuði ársins sem var 3,2 milljörðum króna lakari niðurstaða en á sama tímabili 2025. Launaútgjöld hækkuðu um 2,7 milljarða króna á milli ára sem einkum má rekja til launahækkana samkvæmt kjarasamningum. 

Afskriftir voru 2,0 milljörðum króna yfir áætlun sem skýrist af viðbótarafskriftum vegna fasteigna til niðurrifs, verkefna sem hætt hefur verið við, svo sem selalaugar í Húsdýragarði, og hjúkrunarheimila sem áður voru í sameiginlegri eign ríkis og borgar en fluttust 1. janúar síðastliðinn yfir til ríkisins og bókfært verð var afskrifað í samræmi við lög nr. 40/2025.  

Fjármagnsgjöld (nettó) námu 3,9 milljörðum króna eða 1,9 milljarði króna hærri en áætlun sem skýrist einkum af hærri verðbólgu en áætlað var. Arður af eignarhlutum nam 3,3 milljörðum króna en vaxtagjöld og verðbætur námu 7,6 milljörðum króna og voru 2,0 milljörðum króna hærri en það sem gert var ráð fyrir.

Veltufé frá rekstri nam 8,6 milljörðum króna og var 7,9% í hlutfalli af tekjum tímabilsins.

Mikil óvissa um efnahagshorfur og nauðsynlegt að ná stjórn á rekstrinum 

Óvissa um efnahagshorfur er enn mikil og erfið staða uppi á innlendum vinnumarkaði. Verðbólguvæntingar eru enn yfir markmiði og talin er hætta á að verðbólga reynist meiri en spár segja til um. 

„Niðurstöðurnar sýna glöggt hve mikilvægt verður að ná stjórn á rekstri borgarinnar, enda er ekkert sem ógnar grunnþjónustunni meira en óábyrgur rekstur. Við höldum áfram vinnunni í hagræðingahóp og leggjum áherslu á að auka skilvirkni, draga úr sóun og bæta þjónustuna,” segir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri.