Veistu um leikskólastarf eða daggæslu sem á hrós skilið?

Mynd af leikskólabörnum að skoða bók.
  • Viltu vekja athygli á gróskumiklu og framsæknu leikskólastarfi eða daggæslu í Reykjavík?
  • Veistu af starfi í leikskóla eða í daggæslu sem að á hrós skilið og gæti verið öðrum til eftirbreytni?
  • Viltu veita starfsfólki í leikskólum eða dagforeldrum viðurkenningu og hvatningu?

Markmiðið er að vekja athygli á fyrirmyndarstarfi í Reykjavík. Verðlaunin eiga að veita starfsfólki jákvæða hvatningu og stuðla að nýbreytni og þróunarstarfi. Verðlaunin eru viðurkenning á vel unnu verki í þágu barna og foreldra og staðfesting þess að starfið sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.

Öll geta tilnefnt

Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna leikskóla- og daggæsluráðs vegna leikskóla- og daggæslustarfs í Reykjavík. Opið er fyrir tilnefningar frá 2. nóvember 2026 - 15. janúar 2027. Skráningarform fyrir tilnefningar.

Öll geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar og aðrir aðstandendur barna sem og starfsfólk leikskóla, daggæslu, samtaka og stofnana. Tilnefna má nýbreytni- og þróunarverkefni sem ekki telst hluti af hefðbundnu starfi viðkomandi starfsstaðar. Aðalatriðið er að verkefnið sé öðrum hvatning og eftirbreytni til góðra verka, bæði innan viðkomandi starfsstaðar og utan. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð.