Útskipting umferðarljósabúnaðar við gatnamót Höfðabakka og Bíldshöfða

Umferðarljós

Í kvöld verður ráðist í útskiptingu umferðarljósabúnaðar við gatnamót Höfðabakka og Bíldshöfða. Framkvæmdir hefjast klukkan 21:00 og er áætlað að þær standi fram eftir nóttu.

Á meðan framkvæmdum stendur má búast við tímabundnum truflunum á umferð. Ökumenn eru beðnir um að sýna aðgát, fylgja merkingum og virða fyrirmæli vinnusvæðis.

Markmið framkvæmdarinnar er að bæta öryggi og áreiðanleika ljósastýringar á þessum mikilvægu gatnamótum.