Úthlutun styrkja úr borgarsjóði á sviði menningarmála árið 2026
Úthlutun styrkja og samstarfssamninga menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar á sviði menningarmála og útnefning Listhóps Reykjavíkur 2026 fór fram í Iðnó í dag að viðstöddu fjölmenni.
Formaður ráðsins, Skúli Helgason, gerði grein fyrir úthlutuninni ásamt þeim sex hátíðum Reykjavíkur sem bera titilinn Borgarhátíð 2026-2028.
Alls bárust 169 umsóknir um styrki úr borgarsjóði á sviði menningarmála síðastliðið haust, þar sem sótt var um styrki fyrir tæplega 360 milljónir króna vegna verkefna á árinu 2026. Verkefnin eru af öllum toga; stór sem smá, úr öllum listgreinum og fyrir fólk á öllum aldri. Þessi mikla aðsókn endurspeglar enn og aftur hina miklu grósku sem einkennir reykvískt menningarlíf.
Samkvæmt venju var faghópi skipuðum fjórum fulltrúum tilnefndum af Bandalagi íslenskra listamanna og einum tilnefndum af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, falið að fara yfir innkomnar styrkumsóknir á sviði menningarmála fyrir árið 2026 og leggja fram tillögu að úthlutun fyrir menningar- og íþróttaráð. Hópinn í ár skipuðu Gunnar Andreas Kristinsson (formaður), Helga Guðrún Óskarsdóttir, Hanna Björk Valsdóttir, Jóna Hlíf Halldórsdóttir og Búi Bjartmar Aðalsteinsson
Ráðstöfunarfé faghópsins til úthlutunar nýrra styrkja, samstarfs- og rekstrarsamninga og til Listhóps Reykjavíkur 2026 var samtals 92 milljónir króna, samanborið við 71.6 milljónir króna árið 2025. Menningar- og íþróttaráð hefur beitt sér fyrir því að hækka heildarfjárhæð menningarstyrkja undanfarin þrjú ár til að efla grasrótarstarf í menningarborginni. Á fundi ráðsins þann 9. janúar síðastliðinn var samþykkt að hækka fjárhæðina um 15 milljónir króna sem kemur til úthlutunar í árslok og verður afhent í upphafi næsta árs.
78 verkefni hljóta styrk
Alls hljóta 78 umsótt verkefni á sviði lista og menningar styrkúthlutun úr borgarsjóði á þessu ári. Þar af eru átta nýir samstarfs- eða rekstrarsamningar til tveggja og þriggja ára. Þegar eru í gildi fjórir slíkir samningar sem gilda út árið 2026, við Bókmenntahátíð í Reykjavík, Hringleik, Jazzhátíð í Reykjavík og Stórsveit Reykjavíkur.
Hinir nýju samstarfssamningar eru við RIFF – Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík sem hlýtur 6,5 milljónir króna til þriggja ára, Sequences myndlistartvíæring sem hlýtur 4,5 milljónir króna til tveggja ára, Óperudagar hljóta 4,5 milljónir króna til þriggja ára, List án Landamæra hlýtur 3,5 milljónir króna til þriggja ára, Myndhöggvarafélagið í Reykjavík hlýtur 3,5 milljónir króna til þriggja ára, Kammersveit Reykjavíkur hlýtur 3 milljónir króna til þriggja ára, UNGI sviðslistahátíð hlýtur 2 milljónir króna til þriggja ára og Dans Afríka Barakan Festival Iceland hlýtur 1,5 milljónir króna til þriggja ára.
Hæstu styrkúthlutanir ársins hljóta Caput-hópurinn og Gallery Hakk upp á 3 milljónir króna hvor, kammerhópurinn Nordic affect og Open listamannarekið sýningarrými 2 milljónir króna hvor, Áburður: Sýningarröð Slökkvistöðvarinnar, Extreme Chill Festival, Queer Situations - alþjóðleg bókmenntahátíð, Reykjavík Early Music Festival og Cantoque Ensemble 1.5 milljónir króna hver.
Aðrar styrkúthlutanir eru frá 1,2 milljónir króna og niður í 200.000 krónur.
Kammersveitin Elja er Listhópur Reykjavíkur 2026
Listhópur Reykjavíkur 2026 er Elja, kammersveit sem samanstendur af ungu íslensku klassísku tónlistarfólki og hefur vakið athygli fyrir líflegan og ferskan flutning. Markmið sveitarinnar frá upphafi hefur verið að flytja hágæða tónlist fyrir sem fjölbreyttastan hóp áheyrenda, fá nýja áheyrendur til að hlusta á sígilda og samtímatónlist og leitast eftir að brjóta veggi milli klassískrar tónlistar og annarra tónlistarforma.
Elja hefur til að mynda flutt nýjar útsetningar með GDRN og Jófríði Ákadóttur og flutt Haydn sinfóníur í kartöflugeymslum, svo dæmi séu nefnd. Meðal verkefna sveitarinnar á þessu ári eru frumflutningar á verkum íslenskra tónskálda og tónleikar á tónlistarhátíðunum Seiglu og State of the Art. Elja hlýtur 2.5 milljónir króna í styrk á árinu 2026 auk hinnar formlegu nafnbótar „Listhópur Reykjavíkur 2026“.
Þær sex hátíðir sem áður hafa verið valdar til þess að hljóta titilinn borgarhátíð (e. Partner Festival) á árunum 2026-2028 eru Hinsegin dagar, Hönnunarmars, Iceland Airwaves, Iceland Noir, Myrkir Músíkdagar, Reykjavík Dance Festival, en þessar hátíðir hljóta hver um sig 5 til 12 milljónir króna árlega í styrk frá Reykjavíkurborg á tímabilinu.
Reykjavíkurborg rekur ennfremur þrjár sjálfstæðar og afar öflugar menningarstofnanir, Borgarbókasafn, Listasafn Reykjavíkur og Borgarsögusafn Reykjavíkur, en þar að auki fara hæstu framlög Reykjavíkurborgar til menningarmála í borginni til Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Jafnframt njóta ýmsir sjálfstæðir aðilar húsnæðis- og rekstrarstyrkja frá Reykjavíkurborg á borð við Listahátíð í Reykjavík, Tjarnarbíó, Dansverkstæðið, Bíó Paradís, Nýlistasafnið og Kling og bang.