Úrbætur á aðstöðumálum Ármanns og Fjölnis samþykktar
Aðstöðumál Glímufélagsins Ármanns og Ungmennafélagsins Fjölnis verða tekin til endurskoðunar og hefur borgarráð samþykkt tillögur starfshópa um bætta aðstöðu félaganna til skamms tíma. Þá var umboð starfshópa endurnýjað til að rýna málefni þeirra til framtíðar.
Glímufélagið Ármann var stofnað árið 1888 og er í dag hverfisfélag í Laugardal. Félagið óskaði eftir því að aðstöðumál þess yrðu tekin til skoðunar af hálfu Reykjavíkurborgar og var skipaður starfshópur sem átti meðal annars að leggja mat á núverandi þarfir fyrir aðstöðu og gera tillögur að umbótum. Hópurinn skilaði ýmsum tillögum, sem samþykktar voru af borgarráði í gær. Tillögurnar snúa meðal annars að bættri aðstöðu og aðgengi, auknu geymslurými, bættum merkingum, endurskilgreindum æfingatímabilum, afnotum af æfingasvæðum, möguleikum á auglýsingasölu og auknu samráði um uppbyggingaráform. Áætlaður kostnaður af tillögunum er um 36,5 milljónir króna á ári auk einnar milljónar króna vegna minniháttar framkvæmda.
Kalla eftir uppbyggingu til langs tíma á einum stað
Ungmennafélagið Fjölnir, sem stofnað var 1988 og er í dag hverfisfélag í Grafarvogi, óskaði jafnframt eftir skoðun á aðstöðumálum knattspyrnudeildar félagsins og var sams konar starfshópur settur á laggirnar. Í skýrslu starfshópsins kemur fram að knattspyrnudeild Fjölnis standi frammi fyrir alvarlegum aðstöðuvanda þar sem vellir séu í slæmu ásigkomulagi eða ónothæfir og aðstaðan dreifð á tvo staði, sem hamli starfi og þróun félagsins. Til skamms tíma þurfi að bæta aðgengi að Egilshöll og ráðast í bráðaviðhald, en til langs tíma sé lykilatriði að byggja upp heildstæða aðstöðu á einum stað, í Dalhúsum eða við Egilshöll.
Borgarráð samþykkti tillögur starfshópsins varðandi aðstöðu Fjölnis í gær og snúa þær að því að auka aðgengi að innivelli í Egilshöll yfir sumarið, að ráðast í bráðaviðhald á völlum í Dalhúsum, að setja upp styrktaraðstöðu í Egilshöll, bæta merkingar og skapa tekjuöflunartækifæri. Áætlaður kostnaður af tillögunum er um 17-21 milljón króna á ári.
Báðir starfshóparnir hlutu endurnýjað umboð til að halda áfram vinnu varðandi aðstöðumál félaganna tveggja til frambúðar.