Uppstokkun í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar með hagræði og einföldun að leiðarljósi

Ráðhús Reykjavíkur

Borgarráð samþykkti í dag tillögu borgarstjóra um umfangsmiklar breytingar á stjórnskipulagi velferðarsviðs og  skóla- og frístundasviðs og munu ný skipurit taka gildi þann 1. september 2026. 

  • Breytingarnar leiða til uppsagna 86 starfsmanna, af þeim fá 32 starfsmenn boð um ný eða breytt störf en 54 starfsmenn munu ekki fá áframhaldandi starf. 
  • Stjórnendum og millistjórnendum fækkað en framlínuþjónusta varin.  
  • Hagræðing á ársgrundvelli nemur um 900 milljónum króna.  
  • Með hinu nýja skipulagi verður áfram lögð megináhersla á nærþjónustu við íbúa í hverfum, skólum og frístundastarfi.    
  • Skipulag er einfaldað. Færri stjórnunar- og rekstrareiningar, skýrari verkaskipting og styttri boðleiðir. 
  • Fagþekking hvers málaflokks sameinuð í stærri og sérhæfðari teymum með faglegan stuðning. 
  • Börn og fjölskyldur sækja þjónustu á einn stað. 
  • Þjónusta á miðstöðvunum verður veitt með óbreyttu fyrirkomulagi eftir því sem innleiðingu breytinganna vindur fram, þó eigi lengur en til ársloka 2026.
     

Breytingarnar fela í sér nýtt þjónustu- og stjórnskipulag á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði, þar sem stjórnskipulag verður einfaldað, stjórnendum fækkað og þjónusta í auknum mæli skipulögð eftir faggreinum. Verkefni og þjónusta miðstöðvanna, frístundamiðstöðvanna, Keðjunnar og Virknihúss verða færð inn í nýtt skipulag sem byggir á þjónustuþörfum íbúa, faglegri sérhæfingu og samræmdri þjónustu þvert á borgina í stað landfræðilegrar hverfaskiptingar.  

Innleiðingu breytinganna verður lokið fyrir 1. janúar 2027 og frá áramótum verður: 

Barna- og  fjölskylduþjónusta ásamt skóla og frístundaþjónustu, með aðsetur í Borgartúni 12-14.
Félags- og húsnæðisþjónusta, með aðsetur á Bíldshöfða 20.  

Stjórnkerfi í takt við þarfir íbúa 

Starfsemi og rekstur miðstöðvanna hefur dregist saman um 60% frá því að málefni fatlaðs fólks voru færð frá miðstöðvum til fagskrifstofu á velferðarsviði í ársbyrjun 2025. Þær breytingar sem og nýsamþykkt tillaga borgarstjóra, voru gerðar á grundvelli greiningavinnu sem byggðu meðal annars á samtölum við starfsfólk miðstöðva og voru liður í úttekt á stjórnkerfi borgarinnar sem hófst árið 2024. 

Í samtölunum kom meðal annars fram að fjórskipting þjónustunnar á miðstöðvum takmarkaði heildaryfirsýn, dreifði ábyrgð, skapaði ólíkt verklag milli miðstöðva og að fagteymi væru fámenn og hefðu takmarkaðan sveigjanleika til að leysa úr erfiðum áskorunum. Nýtt skipulag veitir þannig borgaryfirvöldum betri yfirsýn yfir þá mikilvægu málaflokka sem um ræðir, tryggir barnafjölskyldum betri og samræmdara þjónustustig og skapar tækifæri til þess að meta betur gæði og árangur þjónustunnar. Samhliða umbreytingunni verða fjármunir nýttir betur.  

900 milljónir í árlega hagræðingu 

Áætlað er að breytingarnar skili um 900 milljóna króna hagræðingu á ársgrundvelli þegar þær hafa að fullu komið til framkvæmda vegna áhrifa af fækkun stöðugilda, breytinga á stjórnskipulagi og lægri húsnæðiskostnaði. 

Breytingarnar leiða til uppsagna 86 starfsmanna, af þeim fá 32 starfsmenn boð um ný eða breytt störf en 54 starfsmenn munu ekki fá áframhaldandi starf. Þeirra á meðal eru 22 stöðugildi sem lögð verða niður þegar samningur borgarinnar við ríkið vegna samræmdrar móttöku flóttamanna rennur út um áramót. 

„Með þessum breytingum erum við að einfalda skipulag borgarinnar, styrkja faglegt starf og skapa betri umgjörð um þjónustu við íbúa. Markmiðið er að tryggja að fjármunir borgarinnar nýtist sem best í þágu Reykvíkinga. Á sama tíma stöndum við vörð um þjónustuna, sem verður áfram nálægt íbúum, en að baki henni verða öflugri fagteymi, skýrari ábyrgð og styttri boðleiðir. Rekstrarstaða borgarinnar kallar á hagræðingu og því miður verður ekki komist hjá því að hún hafi áhrif á starfsfólk. Við höfum lagt megináherslu á að einfalda stjórnskipulagið og fækka stjórnendastöðugildum í miðlægri stjórnsýslu“, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri.  

Fundargerð borgarráðs 25. ágúst 2026