Uppfært samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík

Heiða Björg og Inga Sæland við undirritun samningsins í Ráðhúsi Reykjavíkur
Heiða Björg og Inga Sæland við undirritun samningsins í Ráðhúsi Reykjavíkur

Inga Sæland og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, hafa endurnýjað samkomulag um uppbyggingu 117 rýma hjúkrunarheimilis við Mosaveg í Reykjavík.

Samkomulagið sem var undirritað er í takt við breytta ábyrgðarskiptingu við uppbyggingu hjúkrunarheimila sem fest var í lög á síðasta ári. Með því færðist ábyrgð á fjármögnun vegna uppbyggingar hjúkrunarheimila alfarið yfir til ríkisins.

Fyrirhugað er að nýja hjúkrunarheimilið verði reist á lóð við Mosaveg 23 í Grafarvogi í Reykjavík sem borgin leggur til. Hjúkrunarheimilið verður byggt af þriðja aðila á grundvelli útboðs og gegn langtímaleigusamningi við ríkið.

„Hjúkrunarheimili við Mosaveg hefur verið í undirbúningi um árabil án þess að komast til framkvæmda. Með þessu samkomulagi, sem byggir á sögulegri sátt ríkis og sveitarfélaga, er verkefnið komið aftur á skrið. Ég hlakka til að sjá glæsilegt hjúkrunarheimili rísa við Mosaveg í Reykjavík. Uppbygging hjúkrunarheimila er á fleygiferð og stjórnvöld hafa sannarlega tekið málefni eldra fólks föstum tökum,“ segir Inga Sæland en uppbygging hjúkrunarheimila heyrir undir hana. 

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri tekur í sama streng. „Það er mikið fagnaðarefni að ná þessu gríðarlega hagsmunamáli í höfn með ríkisstjórninni. Ég veit að nýja hjúkrunarheimilið sem rísa mun á Mosavegi á eftir að skipta sköpum fyrir fólk í Reykjavík. Við erum ekki bara að tryggja að þarna verði byggt hús; við erum að tryggja umönnun, öryggi, félagsskap og bæta lífsgæði.