Ungbarnavænar sundlaugar
Tilraunaverkefni um ungbarnavænar sundlaugar hefst í Breiðholtslaug í mars, þar sem prófaðar verða leiðir til að bæta aðstöðu og upplifun yngstu sundlaugagestanna og fjölskyldna þeirra.
Tilraunaverkefni
Verkefnið miðar að því að efla enn frekar fjölskylduvænt umhverfi í sundlaugum borgarinnar og tryggja að þjónustan þróist í takt við þarfir notenda. Tilraunaverkefnið verður alla sunnudaga í innilauginni í Breiðholtslaug í mars.
Hiti hækkaður og ungbarnaleikföng aðgengileg
Í Breiðholtslaug verður hiti innilaugar hækkaður í 35 gráður á sunnudögum, flot- og ungbarnaleikföng verða aðgengileg og sérstök áhersla lögð á rólegt og barnvænt umhverfi. Reynslan af verkefninu mun nýtast við áframhaldandi þróun ungbarnavænna lausna í sundlaugum borgarinnar.
Taktu þátt í könnun
Samhliða verkefninu verður á næstunni lögð fyrir könnun í sundlaugum borgarinnar þar sem gestir eru hvattir til að deila upplifun sinni af þjónustu og aðstöðu fyrir börn og barnafjölskyldur. Ef þú átt barn, ert forsjáraðili barns undir 3 ára aldri eða nákominn aðstandandi barns sem nýtir þjónustu sundlauganna, er þátttaka þín afar mikilvæg.