Um eitt þúsund foreldrar og börn fengu stuðning hjá Keðjunni í fyrra

Foreldri með börn.

Um eitt þúsund foreldrar og börn í Reykjavík nutu þjónustu Keðjunnar á síðasta ári, en Keðjan veitir fjölskyldum í borginni stuðning vegna margvíslegra áskorana sem tengjast líðan barna, samskiptum og uppeldishlutverki. Keðjan starfar náið með sérfræðingum á miðstöðvum Reykjavíkurborgar og Barnavernd en á þeim vettvangi fer mat á stuðningsþörfum fram. 

Farsældin fól í sér bætt aðgengi að þjónustu

Starf Keðjunnar hefur vaxið jafnt og þétt og fjölbreytt námskeið og meðferðarúrræði eru í boði allt árið. Meiri áhersla hefur verið lögð á snemmtækan stuðning og eru nú til dæmis lausnateymi í öllum skólum sem hafa það hlutverk að kortleggja stöðu barna og leita lausna til stuðnings þeim. Tilkoma teymanna þykir hafa bætt aðgengi foreldra að þjónustu Keðjunnar. Samvinna í málum barnanna þykir heildstæðari og upplýsingar um framboð námskeiða aðgengilegra, bæði fyrir foreldra og fagfólk miðstöðva og barnaverndar.

Fjölbreytt námskeið sem styrkja börn og fjölskyldur þeirra

Eitt af stærstu námskeiðunum er fræðsla og þjálfun sem miðar að því að styðja foreldra barna sem glíma við tilfinningavanda. Á síðasta ári sóttu 133 foreldrar 82 barna þetta námskeið. Einnig var boðið upp á námskeiðið Klókir litlir krakkar, sem sérstaklega er ætlað foreldrum 3–5 ára barna sem upplifa feimni eða kvíða. Það var vel sótt og tóku 64 foreldrar 39 barna þátt.

Peers-námskeið, sem leggja áherslu á að efla félagsfærni barna og ungmenna á mið- og unglingastigi, nutu einnig mikillar aðsóknar. Þar mæta bæði foreldrar og börn til að styrkja samskiptahæfni og félagslega þjálfun. Á síðasta ári tóku 84 foreldrar 46 barna þátt í Peers. Til að ná enn betur til fjölbreytts hóps er nú verið að skoða hvort hægt sé að bjóða námskeiðið einnig á ensku.

„Ég er mun meðvitaðri en áður hvernig ég sem foreldri get hjálpað barninu mínu svo því gangi betur í samskiptum“.

Foreldri sem tók þátt í Peers námskeiði ásamt barni sínu.

Námskeiðið Samvinna eftir skilnað, þar sem lögð er áhersla á fjölskyldumiðaða nálgun í erfiðum samskiptum eftir skilnað, var nýtt af 24 börnum og foreldrum. Venjulega eru slík námskeið í boði á netinu en hér var um að ræða námskeið sniðið að aðstæðum þar sem samskiptaerfiðleikar hafa verið miklir og þörf á markvissri leiðsögn.

PMTO-meðferð, sem er sérhæfð aðferð fyrir börn með aðlögunar- og hegðunarvanda, var í boði bæði sem einstaklings- og hópmeðferð. Alls fengu 55 börn og fjölskyldur þeirra einstaklingsmeðferð og 29 fjölskyldur tóku þátt í hópmeðferð. Að auki sóttu hátt á annað hundrað foreldrar PMTO-foreldranámskeið sem ætlað er þegar vandinn er vægari en krefst þó stuðnings og fræðslu.

 

„Námskeiðið breytti miklu, rútínur ganga núna smurt, barninu líður miklu betur og samskipti okkar eru rólegri“.

Foreldri um PMTO námskeiðið.

Þá sóttu á þriðja tug foreldra SPHARE-námskeiðið, sem ætlað er að styðja fjölskyldur af flóttamannabakgrunni við aðlögun að lífi í nýju landi, efla öryggi og skilning á mennta- og velferðarkerfinu og styrkja tengsl innan fjölskyldunnar.

Samstillt átak mikilvægt til að stuðla að farsæld barna

Nú stendur yfir farsældarvika á höfuðborgarsvæðinu sem sveitarfélögin Kópavogur, Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Kjós taka þátt í, ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttafélögum. 

Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar innleiðingar farsældarlaganna. Lögin fela í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi.