Þrjár tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna tengjast Reykjavík

Mynd af leikskólaviðburði Barnamenningarhátíðar

Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 voru birtar í dag, á alþjóðlegum degi kennara. Meðal þeirra sem hljóta tilnefningu eru þrjú verkefni tengd skóla- og frístundastarfi í Reykjavík sem endurspegla fjölbreytni, nýsköpun og fagmennsku í menntastarfi borgarinnar. Verðlaunin verða afhent á Bessastöðum 10. nóvember næstkomandi.

Framúrskarandi kennsla

Sandra Ómarsdóttir, kennari í Seljaskóla, er tilnefnd í flokki framúrskarandi kennslu fyrir sviðslistakennslu. Tilnefningin er viðurkenning á mikilvægu framlagi hennar til skapandi náms og listkennslu í grunnskóla. 

Tilnefningar vegna þróunarverkefna

Í flokki þróunarverkefna er Söngvavor, sem er mikilvægur hluti af Barnamenningarhátíð, tilnefnt og svo verkefnið Stilla sem leikskólinn Rauðhóll tekur þátt í.

Stilla – hæglátt leikskólastarf er samvinnuverkefni rannsakenda og starfsfólks í fjórum leikskólum, þar á meðal leikskólanum Rauðhóli í Reykjavík. Verkefnið miðar að því að skapa börnum aukið svigrúm til leiks, könnunar og sköpunar með því að gefa þeim meiri tíma til að sökkva sér í eigin hugmyndir og verkefni. 

Söngvavor er samstarf um tónlistaruppeldi, málrækt og jöfn tækifæri barna. Þar vinna leikskólar og tónlistarskólar saman að því að kynna börnum íslenska tónlist og tónsköpun. Börnin læra lög eftir íslensk tónskáld, heimsækja tónlistarskóla, æfa með hljómsveitum og taka þátt í stórri lokahátíð þar sem þau koma fram fyrir áhorfendur. 

Söngvavor hefur verið fastur liður í menningarstarfi leikskólabarna í Reykjavík um árabil. Í vor tóku ríflega 1200 leikskólabörn þátt í tónleikunum í Eldborgarsal Hörpu ásamt nemendum úr tónlistarskólum í Reykjavík. Verkefnið er samstarf 62 leikskóla í Reykjavík, fimm tónlistarskóla og Barnamenningarhátíðar. Verkefnið hófst upphaflega í Reykjavík árið 2010 hjá Tónskóla Sigursveins en þá tóku 20 leikskólar þátt og voru þeir orðnir 30 árið 2015.

Viðurkenning á öflugu menntastarfi

Tilnefningarnar undirstrika þann kraft og metnað sem einkennir skólastarf í Reykjavík, hvort sem um er að ræða skapandi kennslu í grunnskólum eða þróunarverkefni sem efla leik, tónlist, málþroska og þátttöku barna. Þær eru jafnframt viðurkenning á mikilvægu framlagi starfsfólks skóla og samstarfsaðila til að skapa börnum fjölbreytt og framúrskarandi tækifæri til náms og þroska.

Meira um tilnefningar til Íslensku Menntaverðlaunanna.