Þriðji og síðasti áfangi við fækkun stöðugilda í miðlægri stjórnsýslu

Mynd af Ráðhúsi Reykjavíkur séð frá Tjörninni.

Borgarstjórn Reykjavíkurborgar samþykkti í dag tillögu borgarstjóra um umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu fag- og kjarnasviða og á skrifstofum Ráðhússins.

Jafnframt var samþykkt að hlutfall stöðugilda í miðlægri starfsemi Reykjavíkurborgar verði ekki hærra en 7,5% af heildarstöðugildum borgarinnar, en hlutfallið var 8,4% í júní 2026.  Aðgerðirnar fela í sér að 50 starfsmönnum á fimm sviðum og tveimur skrifstofum verður sagt upp störfum en af þeim verður þremur boðin önnur laus störf. Heildaráhrif aðgerðanna munu fela í sér fækkun upp á 73,8 stöðugildi, meðal annars vegna starfsmannaveltu, tímabundinna ráðninga og stöðvunar ráðninga. Starfsfólki sem missir vinnuna býðst að sækja sér aðstoð hjá sálfræðingum og aðstoð við atvinnuleit í gegnum ráðningastofu.

  • Stöðugildum fækkar um 74 í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar.
  • Samtals 50 starfsmenn fá beina uppsögn en fækkun kemur að öðru leyti til vegna starfsmannaveltu, tímabundinna starfa og stöðvunar ráðninga.
  • Áfram verður unnið að hagræðingu og aðhaldi í rekstri borgarinnar.
  • Heildaráhrif vegna fækkunar stöðugilda frá júní til október um 2,3 milljarðar.
  • Áhersla lögð á að verja framlínustörf og grunnþjónustu við íbúa.

Áætlað er að aðgerðirnar skili um 1,3 milljörðum króna í varanlegum árlegum sparnaði. Hagræðingarhópur borgarstjórnar fól sviðsstjórum og öðrum stjórnendum að útfæra og framkvæma hagræðinguna í samræmi við breytt viðmið.

Lokaáfangi umfangsmikillar fækkunar stöðugilda
Tillagan byggir á því að lögbundin verkefni og grunnþjónusta njóti forgangs. Fækkunin nær því fyrst og fremst til miðlægrar stjórnsýslu, innri þjónustu og stjórnunarstarfa en ekki til starfa sem sinna daglegri þjónustu við borgarbúa. Jafnframt verður lögð áhersla á að einfalda verklag, draga úr yfirbyggingu og nýta tækifæri sem skapast hafa með stafrænni umbreytingu. Markmiðið er að styrkja rekstrargrundvöll borgarinnar, draga úr kostnaði við yfirbyggingu og tryggja að fjármunir nýtist sem best til lögbundinnar þjónustu og verkefna sem snúa beint að borgarbúum.

Aðgerðirnar fela í sér síðasta áfanga við fækkun stöðugilda í miðlægri stjórnsýslu  borgarinnar en framvegis verður miðað við að þau stöðugildi fari ekki umfram 7,5% af heildar starfsmannafjölda borgarinnar.

Áfram verður þó unnið að því að styrkja undirliggjandi rekstur borgarinnar með áframhaldandi aðhaldi og reglulegu mati á þeim verkefnum sem ráðist hefur verið í. Þá verða hertar ráðningarreglur enn í fullu gildi. Næstu aðgerðir hagræðingarhóps borgarstjórnar munu snúa að sölu eigna og innkaupum borgarinnar ásamt því að greina og koma með tillögur er snúa að fjarvistum og veikindahlutfalli hjá borginni. 

Fimm svið og tvær skrifstofur verða fyrir áhrifum
Aðgerðirnar ná til mannauðs- og starfsumhverfissviðs, fjármála- og áhættustýringarsviðs, þjónustu- og nýsköpunarsviðs, umhverfis- og skipulagssviðs, menningar- og íþróttasviðs auk skrifstofu borgarlögmanns og skrifstofu borgarstjórnar. Þær ná ekki til skóla- og frístundasviðs eða velferðarsviðs þar sem umfangsmiklar skipulags- og hagræðingaraðgerðir hafa þegar verið samþykktar og framkvæmdar fyrr á árinu.

Hagræðingaraðgerðir upp á 2,3 milljarða
Heildaráhrif hagræðingar og stjórnkerfisbreytinga sem ráðist hefur verið í að undanförnu í þremur áföngum eftir að nýr meirihluti borgarstjórnar tók við í júní síðastliðinn og snerta A-hluta borgarsjóðs eru fækkun um samtals 130 stöðugildi. Aðgerðirnar hafa áhrif til lækkunar launakostnaðar um 2,3 milljarða króna á ársgrundvelli. Þar undir falla hagræðingartillögur vegna skrifstofu borgarstjóra og borgarritara sem samþykktar voru í borgarráði 25. júní síðastliðinn, aðgerðir vegna skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs sem samþykktar voru í borgarráði 25. ágúst síðastliðinn. og þær aðgerðir sem borgarstjórn samþykkti í dag, 27. október. 

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri:

„Með þessum aðgerðum lýkur þriðja og síðasta áfanga þeirrar umfangsmiklu fækkunar stöðugilda sem við höfum þurft að ráðast í undanfarna mánuði í miðlægri stjórnsýslu. Þetta hafa verið erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir sem ekki eru teknar af léttúð. Að baki þessum tölum er fólk sem hefur sinnt mikilvægum störfum og ég vil þakka því fyrir þeirra framlag til borgarinnar í gegnum árin. Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er grafalvarleg. Borgin hefur verið rekin með miklum halla undanfarin ár og við þeirri stöðu verður að bregðast af festu og ábyrgð. Við höfum lagt áherslu á að beina hagræðingaraðgerðum fyrst og fremst að stjórnun, innri þjónustu og miðlægri stjórnsýslu og þannig staðið vörð um grunnþjónustu við borgarbúa. Það er ábyrgð okkar kjörinna fulltrúa að ná tökum á rekstrinum og lækka vaxtabyrði borgarinnar. Aðeins þannig getum við staðið vörð um grunnþjónustuna og tryggt nauðsynlegar fjárfestingar til framtíðar.“

Fundargerð borgarstjórnar