Tengja - skúlptúr og upphitað sæti

Verkið Tengja við Fornhaga
Verkið Tengja við Fornhaga

Torg í biðstöðu verkefnið hefur verið í gangi á torgum og almenningssvæðum í þeim tilgangi að búa til skemmtilegri svæði, hampa því óvænta og vera vettvangur róttækra tilrauna með borgarumhverfið. Eitt af þeim verkefnum sem varð fyrir valinu í ár er verkið Tengja.

Tengja er einskonar skúlptúr sem er eins og sæti úr rörum þar sem affallsvatn hitaveitunnar fær nýtt hlutverk og úr verður hlýtt og aðlaðandi almenningsrými. Tengja, sem stendur við Fornhaga, byggir á hugmyndafræði hringrásarhönnunar og nýtir auðlind sem ella færi til spillis. 

Verkið Tengja við Fornhaga
Verkið Tengja við Fornhaga

Með þessum skemmtilega en um leið hagnýta skúlptúr fær almenningur tengingu við hitaveitukerfið, og um leið er vakin athygli á gildi þessarar einstöku auðlindar og þeim lífsgæðum sem hún getur skapað. Tengja býður öllum sem eiga ferð um Fornhagann tækifæri til að setjast niður, ylja sér og njóta útiveru allt árið um kring, jafnvel yfir köldustu mánuði ársins.

Tumi Valdimarsson, Max Greiner og Janek Beau eru hönnuðir verksins og var það gert í samvinnu við Reykjavíkurborg, Veitur og Torg í biðstöðu.

Tengja verður formlega tekið í notkun á morgun fimmtudaginn 3. september klukkan 17:30

Öll velkomin.