Tekju- og eignamörk vegna sérstaks húsnæðisstuðnings hækkuð

Drónamynd af miðborg Reykjavíkur í snjókomu

Tekju- og eignamörk vegna sérstaks húsnæðisstuðnings sem Reykjavíkurborg veitir einstaklingum og fjölskyldum hafa verið hækkuð. Þetta samþykkti borgarráð fyrr í mánuðinum og gildir hvort tveggja afturvirkt frá 1. janúar 2026.  

Sérstakur húsnæðisstuðningur er fjárhagsleg aðstoð fyrir fjölskyldur og einstaklinga á leigumarkaði sem þurfa stuðning vegna greiðslu á húsaleigu, umfram hefðbundnar húsaleigubætur. 

Til þess að eiga rétt á sérstökum húsnæðissstuðningi þarf að uppfylla ákveðin skilyrði en hægt er að skoða hver þau eru hér á vef Reykjavíkurborgar. Þar er jafnframt sérstök „spurt og svarað“ síða þar sem hægt er að leita svara við ýmsum spurningum sem kunna að vakna varðandi sérstakan húsnæðisstuðning.  

Hækkunin á tekjumörkum nú kemur til vegna breytinga sem gerðar voru á reglugerð um húsnæðisbætur en í þeim fólst að frítekjumörk vegna húsnæðisbóta hækkuðu um 5,20%. Fjárhæðir tekjumarka í reglum Reykjavíkurborgar voru því líka hækkaðar um 5,20% til samræmis við þær breytingar. 

Tekjumörk eftir breytingarnar eru eftirfarandi:

Tafla sem sýnir tekjumörk vegna sérstaks húsnæðisstuðnings.

Einnig var samþykkt að hækka eignamörk vegna sérstaks húsnæðisstuðnings. Eftir breytinguna mega samanlagðar eignir umsækjanda og annars heimilisfólks ekki vera hærri en 8.499.000 krónur en áður nam upphæðin 8.079.000 krónum. 

Sem fyrr segir er breytingin afturvirk frá 1. janúar 2026. Í lok febrúar voru greiðslur vegna janúarmánaðar leiðréttar og greiddar út. Greiðslur fyrir febrúarmánuð tóku mið af framangreindri hækkun.  

Heildaráætlun Reykjavíkurborgar vegna ársins 2026 fyrir sérstakan húsnæðisstuðning er 1.740 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að hækkunin rúmist innan fjárheimilda velferðarsviðs.