Talmeinaþjónusta færð nær börnum í Hlíðaskóla

Hlíðaskóli

Hlíðaskóli tekur þátt í nýju tveggja ára tilraunaverkefni þar sem talmeinafræðingar starfa inni í grunnskólum og veita börnum þjónustu í þeirra daglega umhverfi. Hlíðaskóli er sá grunnskóli í Reykjavík sem tekur þátt í verkefninu til að byrja með en alls eru það fjórir skólar á höfuðborgarsvæðinu sem taka þátt.

Markmiðið er að bæta aðgengi barna að talmeinaþjónustu, stytta bið eftir þjónustu og skapa meiri samfellu með auknu samstarfi talmeinafræðinga, starfsfólks skóla og foreldra.

Fjórir talmeinafræðingar frá Heyrnar- og talmeinastöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins tóku til starfa í skólunum á höfuðborgarsvæðinu í byrjun nóvember, einn í hverjum skóla. Verkefnið er til tveggja ára og er unnið að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins.

Þjónustan er ætluð börnum með tal- og málmein sem falla undir viðmið Sjúkratrygginga Íslands. Mörg þeirra hafa þurft að bíða lengi eftir þjónustu en áætlað er að um 10–12% barna á grunnskólaaldri þurfi á þjónustu talmeinafræðinga að halda.

Meira um verkefnið.