Táknræn spor um drauma barna og framtíðarsýn
Norræna samstarfsverkefninu SPIN – Sprogvenner í Norden lauk formlega í síðustu viku með viðburðum í menningarhúsinu Dokk1 í Árósum. Verkefnið hefur undanfarin tvö ár skapað einstakt rými fyrir börn til að tjá sig, vinna þvert á landamæri og læra hvert af öðru í gegnum tungumál, listir og menningu.
Listaverk úr gömlum skóm
Spor í Norðri – börn marka skrefin var hluti af Barnamenningarhátíð en þar tóku börn yfir stigarými Safnahússins við Hverfisgötu með litríkum verkum. Sýningin stóð yfir dagana 20. til 26. apríl 2026 og voru til sýnis listaverk unnin úr gömlum skóm sem börnin höfðu umbreytt í táknræn verk um drauma sína og framtíðarsýn.
Skórnir á sýningunni táknuðu þau spor sem börnin vilja taka og þau áhrif sem þau vilja hafa á heiminn. Með skapandi nálgun, endurnýtingu og stafrænum miðlum gáfu þau gestum innsýn í hugsanir sínar um betra samfélag, fyrir sig sjálf og aðra.
Verkefnið var unnið undir formerkjum „Listin að skilja hvert annað“, þar sem áhersla var lögð á að efla menningarnæmi, styrkja inngildingu og sýna fjöltyngi sem dýrmæta auðlind. Þátttakendur á Íslandi komu úr Háteigsskóla og Melaskóla en einnig tóku þátt skólar frá Þórshöfn í Færeyjum og Árósum í Danmörku.
Sýningin var jafnframt framhald af stærri samsýningu sem haldin var á Dokk1 í Árósum haustið 2025, þar sem verk um 250 nemenda voru sýnd. Samhliða sýningunni í Reykjavík var haldin opin „skósmiðja“ í Borgarbókasafninu í Grófinni þar sem börn gátu búið til sín eigin skólistaverk og tekið þátt í skapandi ferli.
Hlý viðbrögð og varanleg áhrif
Í maí lauk verkefninu svo formlega með tveimur viðburðaríkum dögum á Dokk1 í Árósum. Þar komu saman kennarar og fagfólk sem unnið höfðu að verkefninu og fóru yfir árangurinn og deildu reynslu sinni, auk þess sem haldinn var opinn þemadagur fyrir fagfólk úr skóla-, menningar- og bókasafnageiranum.
Dagarnir einkenndust af stolti, gleði og þakklæti. Viðbrögð nemenda, foreldra og fagfólks voru afar jákvæð og undirstrikuðu mikilvægi þess að skapa börnum rými til að tjá sig og blómstra. Foreldrar lýstu meðal annars yfir ánægju með að börnin þeirra væru „séð“ og upplifðu að þau tækju raunverulega þátt í verkefninu.
Afrakstur verkefnisins lifir áfram í kennsluefni sem þróað hefur verið út frá vinnu þátttakenda og verður gert aðgengilegt á íslensku, dönsku og færeysku. Vonir standa til að það muni nýtast víðar og hafa áhrif á starfshætti skóla til framtíðar.
SPIN verkefnið sýnir með skýrum hætti hvernig samvinna yfir landamæri, listsköpun og fjöltyngi geta orðið kraftmikil verkfæri til að efla skilning, sjálfstraust og samfélagsvitund barna. Með sínum eigin „sporum“ hafa börnin ekki aðeins sett mark sitt á listasafn og menningarhús heldur einnig á framtíðina.