Takk fyrir komuna á Vetrarhátíð 2026!
Vetrarhátíð sem haldin var um liðna helgi, dagana 7.-9. febrúar, fór afar vel fram í blíðskaparveðri.
Ljóslistaverk lífguðu upp á götumyndina í miðborginni, söfn opnuðu dyr sínar og í sundlaugunum var boðið upp á einstaka og óvenjulega kvöldstund í mögnuðu myrkri. Frítt var inn á fjölbreytta og skemmtilega viðburði.
Takk fyrir!
Á Vetrarhátíð leggur fjöldi fólks hönd á plóg við að skapa einstaka stemmningu í borginni. Við þökkum listafólki og samstarfsaðilum fyrir þeirra framlag við að skapa frábæra hátíð.
Vetrarhátíð 2027 fer fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins 4.-7. febrúar.
Gestum þökkum við fyrir komuna í ár!
Sjáumst hress á Vetrarhátíð 2027!