Tækifæri til úrbóta í skólastarfi
Ný skýrsla unnin fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) dregur fram tækifæri til að draga úr álagi á kennara og annað starfsfólk grunnskóla. Skýrslan er hluti af sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins fyrir árin 2025-2029 sem varðar málefnasviðið Velferð og samfélag. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á fundi SSH og skólastjórnenda þriðjudaginn 19. maí.
Í skýrslunni eru kennsl borin á helstu álagsþætti í skólastarfi og meðal skýringa er fjölgun þungra mála, aukinn hegðunar- og samskiptavandi nemenda, krefjandi samskipti við foreldra, mannekla og breytt samsetning nemendahópsins. Sérstaklega er bent á að aukinn fjöldi nemenda með íslensku sem annað tungumál hafi skapað nýjar áskoranir í skólastarfi.
Stjórnunarhættir lykilatriði
Eitt af meginskilaboðum skýrslunnar er að góðir og styðjandi stjórnunarhættir geti skipt sköpum til að draga úr álagi. Þar er sérstaklega nefnt mikilvægi þess að starfsfólk hafi gott aðgengi að stjórnendum, að stjórnendur sýni sveigjanleika og að traust ríki í samskiptum milli kennara og stjórnenda.
Skýrslan var unnin af Skólastofunni slf. af þeim Dr. Ingvari Sigurgeirssyni og Dr. Lilju M. Jónsdóttur, sem bæði hafa áratugareynslu í kennslufræðum. Hún byggir á rýnihópaviðtölum við 163 starfsmenn í 25 grunnskólum og svörum um 2000 þátttakenda í spurningakönnun.
Sameiginleg viðbrögð sveitarfélaga
Skólamálanefnd SSH fékk skýrsluna til umfjöllunar í mars síðastliðnum og hefur í kjölfarið lagt fram tillögur um næstu skref. Þar er lögð áhersla á að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu vinni saman að úrbótum, meðal annars með samræmingu verkferla, auknum stuðningi og miðlun lausna milli skóla.
Nefndin hefur forgangsraðað tíu aðgerðum, þar af fjórum sem taldar eru brýnastar. Þær felast í:
- Skýrari og samræmdari verkferlum vegna nemenda með alvarlegan hegðunarvanda
- forgangsröðun stuðnings frá skólaþjónustu til þeirra skóla þar sem álag er mest
- Fækkun funda og einföldun skýrslugerðar og námsmats
- Hófsamari innleiðingu þróunarverkefna í skólum
Gert er ráð fyrir að vinna við þessar aðgerðir hefjist innan sex mánaða.
Hluti af stærri sókn í þágu barna
Verkefnið er hluti af víðtækari stefnumótun um farsæld barna á höfuðborgarsvæðinu. Þar má meðal annars nefna stofnun farsældarráðs í nóvember 2025, vinnu við móttöku barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn og nýja viljayfirlýsingu um uppbyggingu sérskólaúrræða.
Niðurstöður skýrslunnar gefa skýra mynd af stöðunni og leggja grunn að markvissum úrbótum í skólastarfi í sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins á næstu árum.
Á forsíðumynd eru Ingvar Sigurgeirsson og Lilja M. Jónsdóttir skýrsluhöfundar ásamt Páli Björgvini Guðmundssyni framkvæmdastjóra SSH.