Sýni tekin úr Tjörninni

Starfsfólk Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að taka sýni úr Tjörninni.
Sýnataka úr Tjörninni

Starfsfólk Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hafa undanfarið unnið að því að safna vatns- og setsýnum úr Tjörninni en sýnatakan er partur af LIFE- ICEWATER verkefninu.

Markmiðið með sýnatökunni er að mæla mengunarefni, svokölluð forgangsefni, í Tjörninni auk greininga á PFAS efnum. Sýnatökurnar eru liður í vöktunaráætlun Tjarnarinnar og er niðurstöðunum ætlað að gefa mynd af ástandinu, greina uppruna mengunar og leita leiða til að bæta efnafræðilegt ástand Tjarnarinnar.

Reykjavíkurborg hlaut á síðasta ári ríflega 150 milljóna króna styrk úr LIFE áætlun Evrópusambandsins til þess að bæta vatnsgæði í Vatnsmýrinni og Tjörninni. Styrkurinn er hluti af 3,5 milljarða króna styrk sem Umhverfisstofnun hlaut úr LIFE áætluninni og er ætlað að flýta fyrir og bæta innleiðingu Vatnaáætlunar á Íslandi.

Markmiðið verkefnisins er að skoða betur efnafræðilegt ástand svæðisins og leita að uppruna mengunar. Á grundvelli þeirra upplýsinga verða skipulagðar aðgerðir til þess að draga úr mengun og fyrirbyggja frekari mengun þrátt fyrir fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu.