Sumarstörf Reykjavíkurborgar 2026
Sumarstörf Reykjavíkurborgar eru komin í birtingu á starfasíðu borgarinnar.
Hægt er að sækja um margvísleg störf sem snerta daglegt líf borgarbúa með ýmsum hætti með það að leiðarljósi að gera Reykjavíkurborg að lifandi og fallegri borg sem veitir borgarbúum á öllum aldri þjónustu.
Stefna Reykjavíkurborgar er að vera einn vinnustaður í öllum sínum fjölbreytileika og hafa aðdráttarafl fyrir hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk sem vinnur í þágu borgarbúa.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Kynntu þér störfin sem eru í boði á starfasíðu Reykjavíkurborgar.
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar nk. en byrjað verður að vinna með umsóknir eftir að umsóknarfresti lýkur.