Speglunarfundur með með norrænum gestum
Loftslagsborgarsamningur Reykjavíkur gefur aukið tækifæri til þess að spegla hugmyndir, sækja ráð og læra af mistökum sem aðrar borgir í Evrópu hafa þegar lært af. Nú fyrstu vikuna eftir páska kom teymi frá tveim borgum tengt svokölluðum Twinning verkefnum.
Verkefnin tengjast að einhverju leyti, þannig að yfir þá tvo daga sem hóparnir voru hér í heimsókn, var einn dagur með sameiginlegum kynningum og umræðum. Heimsóknir og fundir stóðu því yfir í þrjá daga.
Fulltrúar komu frá Bærum sem liggur að Oslo, en innan bæjarmarka var áður alþjóðaflugvöllur höfuðborgarinnar, Fornebu, sem lagður var niður og færður til Gardemoen. Tengt því er verið að þróa og skipuleggja nýtt stórt svæði sem bæði Bærum og Norska ríkið koma að með þróun á nýrri metró línu sem liggur inn á svæðið til þess að þjónusta borgarana betur og skapa aðstæður fyrir áhugaverðara búsetusvæði.
Það sem rætt var við hópinn frá Bærum voru mest mál sem tengdust almenningssamgöngum og aðgengi fyrir hjólandi. Fyrri daginn voru erindi fyrir hádegi en eftir hádegi var farið víðsvegar um borgina og framkvæmdir og ýmsar útfærslur skoðaðar.
Sameiginlegur dagur með fulltrúum frá Bærum og Jakobstad var nýttur til umræðu og kynninga á almenningssamgöngum og í hádeginu fór fríður hópur á Hlemm. Salóme Rósa Þorkellsdóttir frá skrifstofu samgagna og borgarhönnunar kynnti fyrir þátttakendum þróunarverkefnið í kringum Hlemm og hvernig það tengist umbreytingu borgarinnar. Frá Jakobstad sem staðsett er norðarlega í Finnlandi komu tveir fulltrúar, en í því verkefni er verið að skoða virka ferðamáta, úrgangsmál og vistvænar framkvæmdir.
Síðasti dagurinn var eingöngu með Jakobstad. Sjö hæða hringrásarhús var skoðað við Frakkastíg 1 með kynningu frá arkitekts hússins, Arnhildi Pálmadóttur, um morguninn og umræðum var framhaldið í verkefnastofu eftir hádegi.
Starfsfólk úr ýmsum deildum USK kom á fundina sem og frá Strætó, Betri Samgöngum, Sjálfbærnistofnun Hí og VSÓ verkfræðistofu. Öllum sem komu að fundunum er þakkað kærlega.
Þau sem tóku á móti þeim og sinntu voru Hrönn Hrafnsdóttir, Ásdís Karen Waltersdóttir og Böðvar Þórisson hjá aðalskipulagi og loftslagsmálum.