Söngvarar Þjóðleikhússins syngja jólin inn
Líkt og undanfarin ár stendur Þjóðleikhúsið fyrir opnum aðventustundum víða um Reykjavík í desember. Söngvarar og leikarar Þjóðleikhússins fara syngjandi vítt og breitt um borgina en í heild verða sýningarnar meira en tuttugu talsins.
Sýningarnar fara fram á félagsmiðstöðvum, hjúkrunarheimilum og dagdvölum sem Reykjavíkurborg rekur. Sýningin er um hálftími að lengd og með þessu móti er farið með jólastemningu frá Þjóðleikhúsinu út til fólks sem ekki á heimangengt.
Þjóðleikhúsið hóf að bjóða uppá aðventustundirnar í samstarf við velferðarsvið Reykjavíkurborgar í Covid-faraldrinum, á þeim tíma þegar leita þurfti fjölbreyttra leiða til að njóta og miðla menningu, eins og flestir muna. Þá fóru leikarar á Aðventubílnum um borgina og tróðu upp fyrir utan félagsmiðstöðvar og hjúkrunarheimili. Aðventustundirnar slógu strax í gegn, þær voru færðar inn fyrir dyr þegar höftum létti. Í ár leiða leikkonurnar Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir auk nokkurra leikara þjóðleikhússins dagskrána og söngvarar hinnar nýstofnuðu Óperu verða með þeim í för. Skemmtilega dagskrá sem sameinar lifandi tónlist, textaflutning og hlýja jólastemningu.
Sýningarnar verða á eftirfarandi dögum og stöðum og eru öll velkomin á alla staði!
| Vikudagur | Klukkan 10:30 | Klukkan 13:00 |
| Þriðjudaginn 24. nóvember |
Félagsmiðstöð Hæðargarði 31 | Félagsmiðstöð Bólstaðarhlíð 43 |
| Miðvikudaginn 25. nóvember |
Félagsmiðstöð Hraunbæ 105 | |
| Fimmtudaginn 26. nóvember |
Íbúðir eldra fólks Dalbraut 18-20 | Þjónustuíbúðir Dalbraut 27 |
| Þriðjudaginn 1. desember |
Félagsmiðstöð Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöð Sléttunni, Sléttuvegi 25 |
| Miðvikudagunn 2. desember |
Virknimiðstöð Skeifan 8 (fyrir ofan Casa) |
Virknimiðstöð Skeifan 8 (fyrir ofan Casa) |
| Fimmtudaginn 3. desember |
Félagsmiðstöðin Árskógum 4 | |
| Þriðjudaginn 8. desember |
Þjónustuíbúðir Lönguhlíð 3 s. 6608780 |
Félagsmiðstöðin Aflagranda 40 |
| Miðvikudaginn 9. desember |
Félagsmiðstöð Gerðubergi 3-5 | Hjúkrunarheimilið Droplaugastöðum, Snorrabraut 58 |
| Fimmtudaginn 10. desember |
Seljahlíð, Hjallaseli 33 | Virknimiðstöð Opus, Völvufelli 11 |
| Þriðjudaginn 15. desember |
Dagdvöl Þorraseli, Vesturgötu 7 | Félagsmiðstöð Lindargötu 59 |
| Miðvikudaginn 16. desember |
Þjónustuíbúðir Furugerði 1 | |
| Fimmtudaginn 17. desember |
Þjónustuíbúðir Norðurbrún 1 | Borgir, Spönginni 43 |