Skýr ferill fyrir fargufur
Ferill fyrir rekstur fargufa og afnot af borgarlandi var kynntur í umhverfis- og skipulagsráði í dag. Hann hefur verið birtur á vef Reykjavíkur reykjavik.is/fargufur. Fargufur falla undir reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
Fargufur njóta vinsælda um þessar mundir og eru hluti af strandmenningu borgarbúa. Fargufa er færanleg gufa þar sem gestir hafa aðgang að slökun og vellíðan.
Markmiðið með ferlinum og heimasíðunni er að gera umsóknarferlið um leyfi fyrir fargufu og afnotum af borgarlandi skýrara, samræmdara og einfaldara en áður. Ferlið er kortlagt frá upphafi til enda og ábyrgð á hverju stigi skilgreind. Verklagið auðveldar bæði umsækjendum og starfsfólki að vinna málin á samræmdan hátt.
Hér er um að ræða einfalt og gagnsætt umsóknarferli með góðri þjónustu og stuttum afgreiðslutíma. Fargufur auka vægi haftengdrar upplifunar í Reykjavík. Staðsetningar eru metnar hver fyrir sig. Heimilaðar staðsetningar tengjast sjósundi og örverufræðilegum gæðum sjávar.
Á vefnum eru upplýsingar um afnotaleyfi og starfsleyfi og hvernig sótt er um það hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og hvaða skilyrði þarf að uppfylla.